Vill takmarka eggjatöku og veiðar Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. júní 2011 17:49 Lundavarp hefur misfarist undanfarin ár vegna lítillar fæðu. Mynd/ Stefán.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra beinir þeim tilmælum til landeigenda og handhafa hlunnindakorta að eggjataka og hlunnindaveiðar á svartfugli í sumar verði takmarkaðar eða felldar niður á þessu ári. Ástæðan er lélegt ástands fuglastofnanna og fæðubrestur undanfarin ár. Frekari aðgerðir verða skoðaðar í kjölfarið í samráði við vísindamenn, stofnanir og hagsmunaaðila til þess að tryggja betri viðgang sjófuglastofna og sjálfbærar veiðar á þeim. Þá hefur umhverfisráðherra ákveðið, í kjölfar ábendingar frá Fuglavernd og á grundvelli upplýsinga um lélegt ástand margra sjófuglastofna, að skoða hvort ástæða sé til þess að takmarka veiðitíma á lunda og fleiri tegundum svartfugla á vorin. Veruleg fækkun hefur verið í nokkrum stofnum sjófugla og segja má að hrun hafi verið í lundastofninum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Lélegur varpárangur hefur verið hjá lunda, sérstaklega á sunnanverðu landinu, síðastliðin 4-5 ár og í fyrra varð algjör viðkomubrestur í lundavarpi á Suðurlandi. Stuttnefju hefur fækkað um allt land og álku og langvíu um sunnan- og vestanvert landið, en stofnar þeirra hafa haldið nokkuð í horfinu um norðanvert landið. Fæðuskortur ástæða fækkunar Orsakir fækkunar og viðkomubrests sjófugla virðast að mestu leyti vera vegna fæðuskorts, en fuglarnir lifa einkum á sandsíli og loðnu. Hrun varð á sandsílastofninum árið 2000 og hefur hann ekki náð sér á strik síðan. Loðnustofninn hefur verið í lægð síðastliðinn áratug og breytingar hafa verið á göngumynstri loðnunnar. Þótt eggjataka og veiði teljist ekki helsti áhrifavaldur breytinganna eru þetta þeir þættir sem hægt er að hafa áhrif á til þess að styrkja stofnana og draga úr álagi á fuglinn, einkum á varptíma. Frekari aðgerðir til að verndunar stofnum svartfugla eru í skoðun. Svo sem að setja reglur um hlunnindaveiði og nýtingu að sumarlagi, stækka verndarsvæði í kringum fuglabjörg og heimila ekki söfnun eggja til dýragarða. Einnig verður skoðað hvort ástæða sé til þess að takmarka veiðitíma annarra tegunda sjófugla, en heimilt er nú að veiða fýl, dílaskarf, hettumáf, hvítmáf, ritu og toppskarf frá 1. september til 15. mars.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Sjá meira