HIV smit mest á meðal sprautufíkla 6. febrúar 2011 18:41
Tuttugu og fjórir greindust með HIV smit hér á landi á síðasta ári sem er metfjöldi. Nýr sérútbúinn sjúkrabíll Rauða krossins mun auka þjónustu við sprautufíkla verulega, en smitum meðal þeirra hefur fjölgað mest. Það var ljóst allt frá því í haust að árið 2010 yrðu nýsmit HIV fleiri en nokkru sinni fyrr hér á landi. Alls greindust 24 einstaklingar með smit á árinu. Næstmesti fjöldi smita á einu ári er sextán árið 1985, skömmu eftir að veiran kom fram á sjónarsviðið. Fjölgunin síðan þá er meiri en svo að hægt sé að skýra hana með íbúaþróun eingöngu, en að meðaltali greinast um níu manns HIV jákvæð á ári hverju. Tvö tilfellana eru af óþekktum orsökum, fimm karlar smitast vegna samfara við eigið kyn og 7 gagnkynhneigðir smitast vegna kynmaka. Hluti þeirra mun vera af erlendu bergi brotinn og greinist við komuna til landsins. Flestir nýsmitaðir eru sprautufíklar, alls tíu, eða tvöfalt fleiri en árið áður. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir ekki fara milli mála að fjölgunina megi því rekja til fíkniefnaneytenda og kennir auknu andvaraleysi um. Embætti hans reyni að vara við hættunni. „Ef við horfum á árið þá má sjá að fíkniefnaneytendur hlustuðu á þetta og gættu sín betur, " segir Haraldur. Rauði krossinn hefur í eitt og hálft ár starfrækt teymi sem aðstoðar fíkniefnaneytendur tvisvar í viku, gefur þeim hreinar sprautunálar og býður þeim að farga óhreinum. Á þeim tíma hafa alls um 70 manns leitað til teymisins í 190 skipti, langoftast vegna sprautuskipta. Nú hefur teymið sérútbúið gamlan sjúkrabíl og hyggst fjölga vöktum í fjórar í viku hverri, og lengja þær að auki. Þór Gíslason, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, segist vonast til að hægt sé að fækka nýsmitum HIV með því að skaffa fíklum hreinar nálar og draga verulega úr skaðanum sem lifnaðarhættir fíkla valda.
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Umhleypingar næstu daga Veður Fleiri fréttir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Sjá meira