Um 75 milljarðar tapast vegna fjársvika Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 4. janúar 2011 19:25
Eftirlitsmaður hjá Ríkisskattstjóra gerir ráð fyrir að 75 milljarðar glatist árlega á Íslandi vegna fjársvika og misferlis innan fyrirtækja. Endurskoðendur komi aðeins upp um eitt af hverjum 20 misferlistilvikum. Þetta kemur fram í grein Jóhanns Ásgrímssonar í nýjasta hefti Tíundar, sem vinnur að skattaeftirliti hjá Ríkisskattstjóra,. Hann byggir á alþjóðlegri rannsókn sem gerð var í meira en 100 löndum og tók til tæplega 2000 misferlismála. Rannsóknin bendir til að fyrirtæki og stofnanir tapi allt að 5 prósent tekna sinna á hverju ári vegna misferlis og fjárdráttar starfsmanna. Jóhann segir að tölurnar séu sláandi líkar milli landa og því sé vel hægt að heimfæra niðurstöðurnar á Ísland. „Ef við notum sömu aðferðir og er notað í þessum gögnum og skýrslum sem ég hef verið að lesa, þá má ætla að það séu um 75 milljarðar hér á landi sem fara í súginn eða misfarast af misferlisástæðum á hverju ári," segir Jóhann Ásgrímsson. Í greininni fjallar Jóhann einnig um það hvernig misferli uppgötvast. Hann segir sláandi að ábendingar frá þriðja aðila verði til þess að uppræta margfalt fleiri svikamál en fagaðilar. Til dæmis kemst mun oftar upp um svik fyrir tilviljun, en fyrir tilstilli ytri endurskoðenda fyrirtækja, sem aðeins koma upp um eitt af hverjum tuttugu tilvikum. Aðspurður segir Jóhann að það hlutfall virðist vera óeðlilega lágt. „Það er kannski erfitt að fullyrða mjög mikið. Ef ég reyni að vera sanngjarn, þá er í sjálfu sér ekki hlutverk ytri endurskoðenda að uppgötva misferli. Það er þó sannarlega eitt af verkefnum þeirra að leggja mat á hvort misferli sé til staðar, sem hefur áhrif á ársreikninga félaga og ætti að koma fram í áliti þeirra. Ef við horfum til baka, erum við þá ekki nokkuð viss um að það var misferli innan fjármálastofnana tengdum hruninu, og var það ekki verulegt?" Hann bætir við að ýmis gögn bendi til þess að endurskoðendur og aðrir fagaðilar búi yfir mestri þekkingu á misferli og úrræðum til að bregðast við því. Hann kunni ekki svör við því hvers vegna það hafi farið fram hjá þeim þrátt fyrir þekkingu þeirra. Jóhann nefnir þó að hugsanlega séu menn ekki eins óháðir og þeir vilja vera láta. „Þetta eru samverkandi þættir. Það er margt annað sem brást líka og það er mjög erfitt að standa á móti öllum hlutum þegar allt annað í umhverfinu er að bregðast. Ég held að þeir eigi sér málsvörn í því," segir Jóhann. ) Þetta kemur fram í grein Jóhanns Ásgrímssonar, sem vinnur að skattaeftirliti hjá Ríkisskattstjóra, í nýjasta hefti Tíundar. Hann byggir á alþjóðlegri rannsókn sem gerð var í meira en 100 löndum og tók til tæplega 2000 misferlismála. Rannsóknin bendir til að fyrirtæki og stofnanir tapi allt að 5 prósent tekna sinna á hverju ári vegna misferlis og fjárdráttar starfsmanna. Jóhann segir að tölurnar séu sláandi líkar milli landa og því sé vel hægt að heimfæra niðurstöðurnar á Ísland. Í greininni fjallar Jóhann einnig um það hvernig misferli uppgötvast. Hann segir sláandi að ábendingar frá þriðja aðila verði til þess að uppræta margfalt fleiri svikamál en fagaðilar. Eins og sést í meðfylgjandi töflu kemst til dæmis mun oftar upp um svik fyrir tilviljun, en fyrir tilstilli ytri endurskoðenda fyrirtækja, sem aðeins koma upp um eitt af hverjum tuttugu tilvikum.
Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Fleiri fréttir Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Sjá meira