Skotárás: Tveimur sleppt - hinir áfram í gæsluvarðhaldi 4. janúar 2011 15:18 Mennirnir skutu göt í hurðina hjá húsráðanda. Mynd/Stöð2
Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 1. febrúar næstkomandi vegna skotárásar í Bústaðarhverfi á aðfangadag. Þeir hafa játað aðild sína að málinu. Lögreglan fór einnig fram á gæsluvarðhald yfir tveimur öðrum, sem hafa játað aðild sína að málinu og setið í gæsluvarðhaldi frá 25. desember, en dómari Héraðsdóms Reykjavíkur féllst ekki á þá kröfu. Þeir eru nú lausir úr haldi lögreglu. Mennirnir fjórir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu. Rannsókn málsins er lokið og verður það nú sent embætti ríkissaksóknara til frekari meðferðar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tveir karlar komu að húsi í Háaleitishverfi á aðfangadagsmorgun og virtust þeir eiga eitthvað vantalað við húsráðandann. Kom til átaka en mennirnir héldu síðan á brott en sneru svo aftur að húsinu um hádegisbil ásamt tveimur öðrum mönnum og höfðu þá jafnframt haglabyssu meðferðis. Tveimur skotum var hleypt af haglabyssunni og höfnuðu þau bæði í útidyrahurð en byssan var einnig notuðu til að brjóta rúðu í húsinu. Engan sakaði við þetta en heimilisfólkið hafði forðað sér út bakdyramegin áður en skotið var á húsið. Árásarmennirnir voru handteknir þegar þeir reyndu að komast undan og slasaðist þá einn lögreglumaður, þó ekki alvarlega. Haglabyssan fannst á vettvangi og var hún tekin í vörslu lögreglu. Tilefni árásarinnar er talið vera uppgjör skulda.
Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Fleiri fréttir Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Sjá meira