Alþingi að ljúka olíuumræðu 5. september 2011 03:15 Katrín Júlíusdóttir.
Frumvarp iðnaðarráðherra um leit, rannsóknir og vinnslu kolefnis verður til þriðju og síðustu umræðu á Alþingi í dag. Þá verða einnig rædd tvö frumvörp fjármálaráðherra um skattlagningu á kolvetnisvinnslu, en þau eru til annarrar umræðu. Frumvörpin eru liður í breytingum á regluverkinu varðandi olíuleit. Útboð vegna leitar og rannsókna á Drekasvæðinu verður opnað 1. október. „Við höfum þegar orðið vör við þó nokkurn áhuga á útboðinu,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Hún segir að verið sé að samræma reglur því sem þekkist í nágrannalöndum okkar og auka samkeppnishæfni landsins. Náið samstarf hafi verið við Norðmenn vegna málsins, en þeir eru farnir að hugsa sér til hreyfings á svæðinu. Katrín segir áhuga Norðmanna jákvæðan fyrir Íslendinga og auka áhugann á leit og rannsóknum á Drekasvæðinu. Katrín var nokkuð gagnrýnd fyrir að ekki náðist að ljúka málinu fyrir sumarfrí og útboðið tafðist um tvo mánuði. Hún gefur lítið fyrir þá gagnrýni, þeir sem áhuga sýni á olíuleit hugsi ekki í einum eða tveimur mánuðum heldur mun lengri tíma. „Þetta snerist ekki um gjaldeyri inn í landið einn, tveir og þrír. Þessi gagnrýni var hálfgerður pólitískur sumarleikur.“ Gangi útboðið vel má búast við rannsóknum á svæðinu innan tíðar og, skili þær góðum niðurstöðum, vinnslu innan nokkurra ára. „Ef rannsóknir og leit fara strax af stað, eins og vonandi gerist, er æskilegt að við fáum sem mestar tekjur út úr því,“ segir Katrín. - kóp
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira