Frestun reglugerðar blaut tuska í andlit neytenda 5. september 2011 11:02 Lífrænt. Myndin er úr safni.
Samtök lífrænna neytenda og Slow Food Reykjavík gagnrýna Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, harðlega fyrir frestun gildistöku á reglugerð um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla og erfðabreytts fóðurs sem átti að taka gildi 1. september. Ráðherra hefur frestað gildistökunni til 1. janúar 2012. Í yfirlýsingu frá samtökunum, sem finna má á heimasíðu þeirra, kemur fram hörð gagnrýni á ráðuneytið. Fullyrt er á heimasíðunni að frestunin sé tilkomin af tveimur ástæðum, eða eins og segir á heimasíðunni: „Engin skýring hefur verið gefin en við höfum traustar heimildir fyrir því að einkum tvennt komi til: Innflytjendur hafi mótmælt gildistöku reglugerðarinnar, sér í lagi þeir aðilar sem flytja inn matvæli frá Bandaríkjunum. Reglugerðir ESB nr. 1829 og 1830/2003 séu loks á leið inn í EES samninginn, sem þýði að orðalagið muni breytast lítillega í íslensku gerðinni og það gefi tilefni til að fresta gildistökunni." Forsvarsmenn samtakanna saka ráðuneytið um að verja hagsmuni örfárra fyrirtækja, sem flytja inn matvæli frá landi þar sem neytendavernd er fórnað fyrir hagsmuni fjölþjóðafyrirtækja, og hunsa hagsmuni íslenskra neytenda, „sem hafa þurft að biða í átta ár eftir að innleidd sé reglugerð sem gefi þeim tækifæri til að hafa val og taka upplýsta ákvörðun þegar þeir kaupa matvæli." Svo segir í tilkynningunni: „Þetta er blaut tuska í andlit neytenda og við förum fram á að fá ítarlegan rökstuðning ráðuneytisins fyrir frestun gerðarinnar."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira