Struku af meðferðarheimili og brutust inn í sumarbústaði 5. september 2011 20:15 Geldingalækur Mynd/stöð2
Þrír ungir drengir struku af meðferðarheimilinu Geldingalæk um miðjan síðasta mánuð og brutust inn í nokkur sumarhús, höfðust þar við í sólarhring og ollu gífurlegum skemmdum. Sumarhúsaeigendur furða sig á skipulagi starfsemi heimilisins og afskiptaleysi lögreglu. Drengirnir brutust inn í þrjú nærliggjandi sumarhús í Ketlubyggð í leit að áfengi og vímuefnum. Þeim varð heldur betur að ósk sinni þar sem afmælisveisla var nýafstaðin í einu húsinu og nóg af veigum að taka. Talið er að þremenningarnir hafi dvalið í sumarhúsunum í um sólarhring, en á þeim unnu þeir gífurlegar skemmdir og er tjónið talið nema hundruðum þúsunda. Sumarhúsaeigendum á svæðinu var mjög brugðið, en flestir þeirra eru komnir á eftri ár. Forstöðumaður meðferðarheimilisins átti fund með þeim eftir atvikið og staðfesti að vistmennirnir hefðu verið að verki. Þar sagði hann starfsemina jafnframt vera í endurskoðun. Að sögn sumarhúsareiganda, sem hafði samband við fréttastofu, kom það einnig fram á að starfsmenn vistheimilisins hefðu ekki mátt veita unglingunum eftirför og þegar kallað var eftir aðstoð lögreglu, hafði hún ekki haft tök á að sinna útkallinu vegna fáliðunar. Þessu lístu sumarhúsaeigendur furðu sinni á, sem og þeim vandræðagangi sem virðist ríkja hjá á stofnuninni, en í síðustu viku leitaði starfsmaður Geldingalæks sér aðhlynningar á spítala eftir að unglingur á heimilinu laumaði eitruðum vökva í glas hjá honum. Forstöðumaður meðferðarheimilisins staðfesti í samtali við fréttastofu í dag að atvikin hefðu átt sér stað og að fundað hefði verið um málin að undanförnu. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. Þremenningarnir eiga von á ákæru samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira