Vilja rækta tilapíu og flúru á Suðurnesjum 28. júlí 2011 07:00 Norræn tilapía, eða hekluborri, verður fluttur út í fyrsta sinn frá Íslandi í næsta mánuði. Fyrirtækið Matorka er með áform um mikið borraeldi á Reykjanesi. Mynd/anton
Stefanía K. Karlsdótti Tvö fyrirtæki vinna nú að því að hefja fiskeldi á Suðurnesjum og verður framleiðslan samtals um fimm þúsund tonn innan fárra ára ef hugmyndirnar ganga eftir. Einnig munu þá að minnsta kosti 110 manns vinna við þessar stöðvar. Þetta eru fyrirtækin Íslensk matorka sem hyggst hefja eldi á 3.000 tonnum samtals af bleikju og norrænni tilapíu eða hekluborra. Að sögn Stefaníu K. Karlsdóttur, eins af eigendum fyrirtækisins, munu á bilinu 60 til 80 vinna við fiskeldið, slátrun, flökun og pökkun en einnig séu uppi hugmyndir hjá fyrirtækinu um enn frekari vinnslu á afurðinni. Hún segist enn fremur búast við því að framleiðslan hefjist þegar á næsta ári. Hitt fyrirtækið er Stolt Sea Farm, sem hyggur á eldi á 2.000 tonnum af senegalflúru. Athafnasvæði fyrirtækisins verður um 600 metra vestan við Reykjanesvirkjun HS Orku. Ráðgert er að ekki færri en fimmtíu manns starfi við eldisstöðina en allt að 75 önnur störf gætu fylgt starfseminni að sögn Pablos Garcia, forstjóra Stolt Sea Farm. Hann segir að fyrirtækið hafi sótt um öll tilskilin leyfi og vonast hann til að hægt verði að hefja framkvæmdir á þessu ári. Áætlaður kostnaður við þær verður ekki minni en 2,5 milljarður en byggt verður á um sjö hektara svæði. „Við erum í þessu af fullri alvöru og ég get sagt það að eldisstöð sem þessi mun ekki eiga sinn líka í heiminum svo þetta mun heldur betur koma Íslandi á kortið í þessum geira,“ segir hann. Hann vonast til þess að getað kynnt þessi áform ítarlega á blaðamannafundi á Íslandi í næsta mánuði. Hann segir enn fremur margar ástæður fyrir því að Ísland varð fyrir valinu. „Til dæmis kemur jarðhitinn sér vel og svo er Ísland afar jákvætt fyrir verkefnum sem þessum og hingað til höfum við ekkert nema gott um samskipti okkar við íslensk stjórnvöld að segja,“ segir Pablo. Fyrirtækið rekur nú þegar níu eldisstöðvar; þar af sex á Spáni, eina í Noregi, eina í Portúgal og eina í Frakklandi. jse@frettabladid.isÁrni SigfússonPablo Garcia
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira