Ekki forsenda til að lækka lánshæfismat 11. apríl 2011 04:00 Steingrímur j. Sigfússon.
Ekki eru efnislegar forsendur til að lánshæfismat ríkissjóðs verði lækkað þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave. Þetta er mat Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir að koma verði í ljós hvað alþjóðlegir lánveitendur aðhafist í kjölfar niðurstöðunnar. Áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA verði svarað sem fyrst og málstað Íslands haldið kröftuglega á lofti. „Þetta hefur sinn gang og nú er verkefnið að verja hagsmuni Íslands eins vel og mögulegt er og reyna að fá dómsniðurstöðu flýtt eins og kostur er. Öllu máli skiptir að við verjumst sem best og nýtum þau sóknarfæri sem eru til staðar,“ segir Árni Páll. Svarbréfið er í vinnslu og næstu skref verða ákveðin í samráði við forseta Eftirlitsstofnunar EFTA. Árni Páll telur ekki tímabært að segja til um líkur þess að Bretar og Hollendingar höfði skaðabótamál gegn íslenska ríkinu. „Við skulum bíða og sjá, nú er að halda fram okkar rökum fyrir því að okkur beri ekki skylda til að greiða og ég tel okkur hafa ágæt rök í því máli.“ Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar kalli á visst endurmat á forsendum ríkisfjármála- og efnahagsmála. Árni Páll segir að í því felist að metið verði hvort endurskoða þurfi áætlanir ríkisstjórnarinnar. „Við teljum að þetta eigi ekki að hafa neikvæð áhrif á forsendurnar því málið snýst um afmarkaðan ágreining um greiðsluskyldu en ekki annað.“ Á blaðamannafundi í gærmorgun lagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ríka áherslu á að niðurstaðan feli ekki í sér að Ísland muni lenda í erfiðleikum með afborganir af erlendum skuldum. Gjaldeyrisforðinn nægi fyrir afborgunum á næstu árum. Hann lagði jafnframt áherslu á að væntingar standi til þess að útgreiðslur úr búi Landsbankans geti hafist í sumar. Þá fá Bretar og Hollendingar greitt upp í kröfur sínar. Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að mikilvægt sé að eyða, eins og kostur sé, þeirri óvissu sem niðurstaðan óhjákvæmilega skapi. Ríkisstjórnin muni eiga viðræður um stöðuna við formenn stjórnarandstöðuflokkanna, samtök launafólks og atvinnurekenda vegna kjaraviðræðna og vinna náið með Seðlabankanum. Einnig verði viðræður við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, og samstarfsþjóðirnar, hin Norðurlöndin og Pólland, til að freista þess að tryggja hnökralausa framvindu efnahagsáætlunarinnar. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku Sjá meira