Þingið getur ákveðið að segja stopp 15. janúar 2011 07:00 Árni Þór Sigurðsson
Þótt í þingsályktun Alþingis sé ekki gert ráð fyrir öðru en að aðildarviðræðunum við ESB ljúki með samningi sem borinn verður undir þjóðina settu forystumenn VG fyrirvara í umræðum um málið. Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, sagðist í umræðunum í júlí 2009 vilja halda því til haga að stjórnvöld gætu hvenær sem væri dregið sig út úr viðræðunum, „ef þeim þykir einsýnt að hagsmunum Íslands verði áfram betur borgið utan sambandsins eða fyrir liggi að ekki náist ásættanlegur aðildarsamningur“. Ályktun Alþingis þyrfti til að hætta viðræðunum. Árni Þór ítrekaði þetta sjónarmið í Fréttablaðinu á miðvikudag. Tók hann jafnframt fram að hann teldi ástæðulaust að huga að viðræðuslitum nú. „Ég er enn þeirrar skoðunar að það eigi að halda viðræðum við ESB áfram, ljúka þeim og leggja niðurstöðuna í almenna þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Árni í samtali í gær, en Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur túlkað orð Árna frá því á miðvikudag þannig að um stefnubreytingu sé að ræða. Í áðurnefndum þingumræðum talaði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, á sömu leið og Árni. „Við áskiljum okkur [...] líka rétt til þess á hverju stigi málsins sem er að leggja það til að samningaviðræðunum verði hætt og það á Alþingi líka að gera.“ Ekki kom til þess að þingið setti ákvæði í þessa veru inn í ályktunina.- bþs
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira