Segir forseta brigsla ráðamenn um landráð og líkir honum við Lady Ga Ga 7. september 2011 10:21 Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, harðlega í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í dag. Þar segir Jón Baldvin forsetann brigsla ríkisstjórnina um landráð, „með því að semja um Icesave – beygja sig fyrir fáránlegum kröfum og ofbeldi Breta og Hollendinga, eins og hann [Ólafur Ragnar innskt. blm.]kallar það – hafi ríkisstjórnin brugðist þjóðarhagsmunum,“ skrifar Jón Baldvin. Hann bætir við að Ísland sé eina ríkið í heiminum, „svo mér sé kunnugt um, þar sem forseti ríkisins getur brigslað sitjandi ríkisstjórn um landráð, án þess að það gerist nokkuð. Engin viðbrögð,“ skrifar Jón Baldvin og spyr síðan: „Hvurnig er það – tekur enginn mark á forsetanum?“ Jón Baldvin segir síðan að ríkisstjórn Íslands geti ekki látið meint svikabrigsl forsetans eins og vind um eyru þjóta. „Ef forsetinn sér ekki sjálfur sóma sinn í að gæta tungu sinnar, geta ábyrgir stjórnmálaleiðtogar – eins og ráðherrar utanríkis- og ríkisfjármála – ekki lengur leyft sér að láta hjá líða að svara fullum hálsi – þegar forsetinn fer yfir strikið. Þeim er skylt að taka af tvímæli um, hverjir beri ábyrgð á íslenskum þjóðarhagsmunum,“ skrifar Jón. Jón Baldvin lætur svo fylgja með spaugilegt augnablik sem hann upplifði í Eistlandi á dögunum. Hann lýsir því svona: „Áður en forsetinn flutti ræðuna hafði eistneski utanríkisráðherrann á orði, að dætur hans ungar væru í sjöunda himni, af því að þeim hefði hlotnast sú náð að taka í höndina á átrúnaðargoði sínu – poppstjörnu, sem væri þekkt sem hin eistneska „Lady Ga Ga“. Nærstaddur landi vor, sem heyrði þetta, missti þá út úr sér: Heldurðu að þær verði nokkuð minna upp með sér af því að fá að taka í höndina á okkar íslenska „President Ga Ga“?“ Á þeim nótum endar Jón Baldvin grein sína þegar hann spyr hvort það þurfi að útskýra málið fyrir viðsemjendum landsins með sögunni af „Lady Ga Ga“?
Tengdar fréttir Lady Ga Ga? Ólafur Ragnar Grímsson stærir sig nú af því, að hann hafi alltaf vitað, að þrotabú LB ætti fyrir forgangskröfum (Icesave). Hann hafi m.ö.o. vitað, að skuldir óreiðumanna (eigenda LB) myndu aldrei lenda á almenningi. 7. september 2011 06:00 Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira
Lady Ga Ga? Ólafur Ragnar Grímsson stærir sig nú af því, að hann hafi alltaf vitað, að þrotabú LB ætti fyrir forgangskröfum (Icesave). Hann hafi m.ö.o. vitað, að skuldir óreiðumanna (eigenda LB) myndu aldrei lenda á almenningi. 7. september 2011 06:00