Kvótakerfinu breytt Jónas Margeir Ingólfsson. skrifar 30. janúar 2011 18:58 Jón Bjarnason. Mynd/Anton Brink
Í frumvarpi til nýrra laga um úthlutun aflaheimilda verða lagðar til víðtækar breytingar á fyrirkomulagi úthlutunar kvóta. Sjávarútvegsráðherra hyggst leggja frumvarpið fram í febrúarmánuði. Samtök atvinnulífsins hafa lýst því yfir að ekki verði gengið til almennra samninga á vinnumarkaði nema að komist verði að niðurstöðu um framtíð sjávarútvegsins. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fór hörðum orðum um þessa afstöðu samtakanna á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær „Grímulaus valdaklíka LÍU skirrist ekki við að þvinga Samtök atvinnulífsins til að taka alla kjarasamninga í landinu í gíslingu til að tryggja áframhaldandi forræði þeirra á auðlindunum í sjónum," sagði Jóhanna. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hyggst nú flýta fyrir frumvarpi til nýrra laga um úthlutun veiðiheimilda. Samkvæmt heimildum fréttastofu felur frumvarpið í sér að kvótaeigendur semji við ríkið um hluta veiðiheimildanna en ákveðnum hluta þeirra verður ráðstafað af sjávarútvegsráðuneytinu með öðrum hætti. Heimildir fréttastofu herma að þeim hluta aflaheimilda verði úthlutað í sérstaka „kvótapotta“ sem teknir eru frá fyrir byggðir og nýliða. Innan ráðuneytisins er gengið út frá því að samið verði við núverandi kvótaeigendur en óvíst er hvort samið verði um ákveðna aflahlutdeild eða annað fyrirkomulag en hlutdeild í afla. Almennt sé byggt á þeim sjónarmiðum sem fram komu í skýrslu starfshóps um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða. Ekki náðist í Jón Bjarnason við vinnslu fréttarinnar en hann hyggst flytja frumvarpið í febrúarmánuði. Samkvæmt heimildum fréttastofu er frumvarpið ekki komið á blað en unnið er að því að semja það upp úr ýmsum minnisblöðum sem eru afrakstur margra funda um málið innan ráðuneytisins. Fundað er daglega um málið.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Skotárás við Álaborg Erlent Fleiri fréttir Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Sjá meira