Fréttaskýring: Auðlindir verði að hámarki leigðar út til 25 eða 30 ára 18. janúar 2011 05:30 Meta á svokallaðan umhverfiskostnað af virkjunarframkvæmdum og rukka þá sem virkja um þann kostnað, að mati höfunda draga að nýrri orkustefnu.Fréttablaðið/GVA
Hvaða áherslur endurspeglast í drögum að nýrri orkustefnu sem gerð hafa verið opinber? Lagt er til að vatns- og jarðvarmaauðlindir landsins verði ekki leigðar út til lengri tíma en 25 til 30 ára í drögum að nýrri orkustefnu sem nú hefur verið gerð opinber. Þetta er mun styttri tími en talað hefur verið um hingað til, til dæmis fékk HS Orka nýtingarrétt á jarðvarmaauðlindum á Suðurnesjum til 65 ára, með möguleika á framlengingu til 65 ára til viðbótar. Í drögum að orkustefnu, sem unnin voru að frumkvæði iðnaðarráðherra, segir að með tilkomu samkeppni og aðkomu einkafyrirtækja að orkuvinnslu sé enn mikilvægara en áður að setja skýrar reglur um leigu á vatns- og jarðhitaréttindum. Í drögunum eru útlistuð ýmis markmið í þeim efnum, og er þar efst á blaði það markmið að orkuauðlindir á svæðum í eigu ríkis- og sveitarfélaga verði áfram í opinberri eigu. Þjóðin, eða ríkissjóður í hennar umboði, eigi að hafa sanngjarnan arð af auðlindunum. Enn fremur eigi að gera eignarhaldið skýrt og einfalt, til dæmis með því að koma orkuauðlindum, sem beint eða óbeint eru á forræði ríkisins, í sérstakan auðlindasjóð eða auðlindastofnun. Sjóðurinn eða stofnunin hafi svo það verkefni að leigja út orkuauðlindirnar með samræmdum hætti. Lagt er til í drögum að orkustefnu að virkjanakostum verði forgangsraðað. Þá er lagt til að virkjanakostir í nýtingarflokki verði rannsakaðir á kostnað ríkisins, ekki þeirra sem vilji leigja auðlindina. Sá kostnaður verði síðan endurgreiddur af þeim sem á endanum virkjar á svæðinu. Þá er lagt til að skýrar kröfur verði gerðar um umgengni um auðlindirnar, náttúru og umhverfi. Vinnsla jarðvarma verður að haldast í hendur við varma- og vökvastreymi hvers svæðis svo svæðið haldist í jafnstöðu til lengri tíma, að mati þeirra sem vinna nú að nýrri orkustefnu. Nýta verði jarðvarmann með lágmarks áhrifum á náttúru og umhverfi svo vinnslugeta sé tryggð til fyrirsjáanlegrar framtíðar.Lágmarka áhættu á áföllumÍ drögum að orkustefnu er lagt til að sett verði skýr markmið um að vinnslufyrirtæki í eigu opinberra aðila ráðist aðeins í virkjanaframkvæmdir sem séu hagkvæmar. Virkjanirnar verði að skila samfélagslegum ábata og eðlilegum arði til almennings. Lágmarka verði áhættuna af því að áföll í verkefnum fyrir stórnotendur komi niður á orkuverði og orkuöryggi almennra notenda.Í drögunum er lagt til að gert verði skylt að leggja mat á umhverfiskostnað þegar mat á umhverfisáhrifum er unnið. Þannig verði skoðað hvert verðmæti þeirra náttúruverðmæta verði sem þurfi að fórna vegna framkvæmda. Ef til útboðs á virkjanakostum kemur ætti umhverfiskostnaðurinn að vera hluti af auðlindagjaldinu.brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira