Býður sig fram til formanns VR Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. janúar 2011 11:32 Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur býður sig fram til formennsku í VR. Mynd/ Arnþór.
Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur lýsti yfir framboði til embættis formanns VR á framhaldsaðalfundi sem haldinn var í félaginu í gær. Kosningarnar verða í mars. Stefán Einar segist taka þessa ákvörðun að vandlega yfirlögðu ráði og eftir áskoranir frá félagsmönnum sem uggandi séu yfir þeirri óeiningu sem ríki innan stjórnar félagsins. „Nú þegar kjaraskerðing félagsmanna er orðin óbærileg, kjarasamningar eru lausir og sífellt þrengir meira að heimilunum í landinu, er nauðsynlegt að stærsta verkalýðsfélag landsins sé í stakk búið til að láta til sín taka," segir Stefán Einar meðal annars í tilkynningu til fjölmiðla. Styr hefur staðið um stjórn VR að undanförnu. Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, sagðist í grein í Fréttablaðinu í gær vera í vafa um það hvort hann myndi „taka slaginn" að nýju. Átökin í VR hefðu tekið á sig og fjölskyldu sína, en stærsta fórnarlambið sé félagið sjálft. „Þegar allt kemur til alls eru tæplega 30 þúsund félagsmenn að líða fyrir átök 100-200 félagsmanna og það mitt í kjarasamningum. Er virðing og réttlæti í því? Við slíkar kringumstæður hlýtur maður að velta framhaldinu fyrir sér. Þar hljóta að vega þyngst hagsmunir félagsmanna. Satt að segja er ég orðinn baráttulúinn og í vafa um hvort ég taki slaginn á nýjan leik," sagði Kristinn Örn.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira