500 barnaníðsmál send lögreglu 7. mars 2011 09:30
Nær 500 ábendingar af rúmlega fimm þúsund, sem borist hafa Barnaheillum um myndefni þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt, hafa verið sendar áfram til lögreglu. Ábendingarnar hafa borist í gegnum ábendingarhnapp sem fólk getur notað verði það vart við efnið. Ábendingarnar fara síðan til rannsóknar hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Þetta segir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum. Nokkur af þessum málum hafa leitt til ákæru fyrir íslenskum dómstólum fyrir vörslu á efninu. „Við vitum ekki til þess að íslensk börn hafi lent á þessum myndum og myndböndum sem lagt hefur verið hald á,“ segir Margrét. Hún bendir á að í gagnagrunni alþjóðalögreglunnar Interpol séu myndir og upplýsingar um tuttugu þúsund börn sem brotið hefur verið á með þessum hætti, en ekki hafi nema innan við þúsund fundist. „Það er afar mikilvægt að finna þessi börn og koma þeim til hjálpar.“ Hún segir hins vegar nokkuð um að myndir þar sem stálpaðir krakkar eru sýndir á kynferðislegan hátt birtist á samskiptasíðum á vefnum. Hún brýnir fyrir krökkum að láta ekki taka af sér slíkar myndir. - jss
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent Fleiri fréttir „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Sjá meira