Stefnir DV - vill fimm milljónir í miskabætur 18. mars 2011 14:09
Jón Snorri Snorrason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, hefur ákveðið að stefna DV vegna frétta blaðsins af gjaldþroti Siguplasts, þar sem Jón var stjórnarformaður. Blaðið hélt því meðal annars fram að Jón sætti lögreglurannsókn en hann segist hafa það staðfest frá ríkislögreglustjóra að það sé ekki rétt. Jón segir að DV hafi vegið að starfsheiðri sínum með grófum ærumeiðingum og krefst fimm milljóna í miskabætur. „Á forsíðu DV síðastliðinn mánudag var því ranglega haldið fram að Jón Snorri sætti rannsókn lögreglu í tengslum við gjaldþrot Sigurplasts, en Jón var þar stjórnarformaður. Ríkislögreglustjóri hefur staðfest að engin rannsókn standi yfir á hendur Jóni Snorra,“ segir meðal annars í tilkynningu frá Jóni Snorra. „Umfjöllun DV um Jón Snorra var sett fram með afar meinfýsnum hætti,“ segir ennfremur. „Því var slegið upp með stríðsletri og mynd af Jóni á forsíðu blaðsins að lögregla væri að rannsaka hann sem lektor. Tilgreint var sérstaklega að hann væri lektor í viðskiptafræðum sem hefði haft umsjón með MBA námi háskólans. Eins og nærri má geta hefur þessi fréttaflutningur skaðleg áhrif á starfsheiður og æru Jóns Snorra.“ Þá segir að Tryggvi Agnarsson, lögmaður Jóns Snorra, hafi gefið Reyni Traustasyni ritstjóra DV færi á að að bæta úr „með því að draga ósannindin til baka,“ en Reynir er sagður hafa hafnað því.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Sjá meira