Samningurinn ekki nógu góður 5. febrúar 2011 12:13 Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Krafan um að Icesavesamningurinn fari í þjóðaratkvæðagreiðslu virðist njóta æ meira fylgis í þingliði Sjálfstæðisflokksins. Formaður flokksins segist ekki hafa útilokað þann möguleika, en hann hefur boðað til fundar um málið í Valhöll í dag. Búist er við fjölmennum fundi en afar skiptar skoðanir eru um málið innan flokksins. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti yfir stuðningi við Icesavesamninginn í vikunni, ásamt átta þingmönnum flokksins. Sú afstaða hefur vakið hörð viðbrögð frá flokksmönnum og hafa ungliðahreyfingar og önnur aðildarfélög innan flokksins mörg hver lýst yfir vonbrigðum með afstöðuna. Þá hefur fyrrverandi formaður flokksins gagnrýnt Bjarna og sagt hann vikapilt Steingríms J. Sigfússonar. Í Morgunblaðinu í dag lýsir Kristján Þór Júlíusson þingmaður flokksins þeirri skoðun sinni að hann vilji að málið fari í þjóðaratkvæðagreiðslu, þar útilokar Bjarni ekki þann möguleika. Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður flokksins er andsnúinn samningnum og hefur ekki legið á þeirri skoðun sinni. „Það eru auðvitað skiptar skoðanir um þetta mál í Sjálfstæðisflokknum. Mín afstaða er skýr. Samningurinn er ekki nógu góður," segir Unnur Brá og tekur fram að Íslendingum beri ekki að borga kröfur Breta og Hollendinga. „Og ef við ætlum að gera það, verður samningurinn að vera góður, þessi samningur er það ekki." En er Unnur á þeirri skoðun að samningurinn ætti að fara í Þjóðaratkvæðagreiðslu? „Ég tel að það væri gott, ef slík tillaga kæmi fram í þinginu." Sjálf kemst hún ekki á fundinn í Valhöll í dag en hvetur fólk til þess að mæta og hlusta á röksemdir forystu Sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Starmer segir af sér Erlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Innlent Fleiri fréttir Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Markmiðið að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Sjá meira