Harmar að skólinn bíði hnekki 25. júní 2011 07:00 Stjórn skólans vonar að fórnalömbin upplifi réttlæti af hendi þeirra sem teljast ábyrgir.
Stjórn Landakotsskóla hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Fréttatímans um kynferðisofbeldi gegn börnum innan Landakotsskóla á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Í yfirlýsingunni segir meðal annars að málið sé „óendanlega sorglegt“ og „stjórn og starfsfólk skólans harmi að starfsemi skólans skuli nú þurfa að bíða hnekki fyrir misyndisverk einstaklinga við skólann á fyrri tíð.“ Þá sendi biskup kaþólsku kirkjunnar, Pétur Bürcher, frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að hann hefði átt fund með lögmanni kirkjunnar, Friðjóni Erni Friðjónssyni, og Jakobi Rolland, kanslara kirkjunnar, og rætt þau málefni sem hefðu verið til umræðu að undanförnu. Þá hefði biskup þegið ráð hjá Róbert R. Spanó, formanni rannsóknarnefndar kirkjuþings, um næstu skref. Biskup hefur í hyggju að taka ákvörðun um frekari viðbrögð sín í upphafi næstu viku og verður tilkynning send fjölmiðlum af því tilefni. Tvær konur sögðu í viðtali við Fréttatímann að þær hefðu orðið fyrir grófu kynferðislegu ofbeldi af hálfu séra A. George, þáverandi skólastjóra Landakotsskóla og staðgengils biskups kaþólsku kirkjunnar, þegar þær voru börn. - sv
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Fleiri fréttir RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Sjá meira