Tveir björgunarsveitarmenn hætt komnir: Hélt ég myndi drepast þarna Andri Ólafsson skrifar 5. júní 2011 18:45
Tveir björgunarsveitarmenn frá Hvammstanga voru hætt komnir eftir að félagar þeirra gleymdu þeim á hafi úti. Mennirnir velktust um í sjónum í næstum 40 mínútum áður en þeim var bjargað. Annar þeirra var þá orðinn mjög kaldur og þrekaður. Í tilefni sjómannadagsins hélt björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga sýningu fyrir bæjarbúa. Siglt var með fólk út á Miðfjörð og björgunarsveitarmenn í blautbúningum hentu sér út í sjó og félagar þeirra á slöngubátum sýndu hvernig björgun fer fram á hafi úti. Þegar sýningunni lauk var siglt aftur í land. Þegar þangað var komið uppgötvaðist að tveir björgunarsveitarmenn höfðu orðið eftir. Þeir biðu í sjónum og ráku hratt frá þeim stað þar sem þeir voru skildir eftir. Annar þeirra fékk vatn inn á flotgallann og kólnaði fljótt. Spurður hvort þeir hafi getað talað saman svarar Ævar Marteinsson, björgunarsveitarmaður:Ævar Marteinsson.„Nei, það var svo mikil vindur að það heyrðist ekkert. Við heyrðum óminn í hvorum öðrum en greindum engin orð. Svo fjarlægðist hann hratt því hann var orðinn svo máttvana." Ævar segir að þá hafi rekið hátt í 40 mínútur áður en félagar þeirra komu þeim til bjargar. Þeir voru þá báðir fluttir á heilsugæsluna, þar sem félagi Ævars liggur enn. Formaður Björgunarsveitar Húna segir að misskilningur og mannleg mistök hafi orði til þess að svona fór. Ævar segist enn vera að jafna sig, en tilfinningin þegar hann áttaði sig á því að þeir félagarnir höfðu verið skildir eftir var honum erfið. „Fyrst þegar ég áttaði mig á hlutunum, að ég væri einn úti á hafi, sturlaðist ég næstum því. Svo róaðist ég niður. Ég fékk í raun hræðslukast, því ég hélt ég myndi bara drepast þarna," segir Ævar sem óttaðist sannarlega um líf sitt.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Sjá meira