Fimm milljarðar til Vestfjarða 6. apríl 2011 03:45 Ríkisstjórnarfundur var haldinn á Ísafirði í gær. Mynd/Halldór Sveinbjörnsson
Á fundi sínum á Ísafirði í gær samþykkti ríkisstjórnin sextán verkefni sem eiga að efla byggð og atvinnusköpun í landshlutanum. Samtals á að leggja um 5,4 milljarða króna í þessi verkefni, en af þeirri fjárhæð eru 1,5 milljarðar nýtt fé. Í tilkynningu frá stjórninni hafa þessi verkefni verið undirbúin í samvinnu allra ráðuneyta og í samráði við heimamenn. „Verkefnin snúa meðal annars að menntun, velferð, umhverfismálum og auknum framkvæmdum í vegagerð og snjóflóðavörnum,“ segir í tilkynningunni. „Ætlunin er að fylgja verkefnunum eftir á samráðsvettvangi stjórnvalda og sveitarfélaga með það að markmiði að ábyrgð þeirra færist í auknum mæli heim í hérað. Sú vinna tengist gerð sóknaráætlana landshluta og markmiðum sem sett eru fram í stefnumarkandi skjali stjórnvalda, Ísland 2020.“ Stærstur hluti fjárins fer í vegagerð, eða 4,3 milljarðar, en einn milljarður fer í ofanflóðavarnir á Vestfjörðum. Afgangurinn, um 102 milljónir króna, fer í ýmis verkefni, svo sem uppbyggingu í menntamálum og rannsóknum, aukið framlag til Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, stofnun Látrabjargsstofu og til að tryggja rekstur Melrakkaseturs. Þá verður sett fé í öldrunarþjónustu og ýmis átaksverkefni til atvinnusköpunar.- gb
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira