Sat inni fyrir árás á móðurina og afann 6. apríl 2011 07:00 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun yfirheyra mennina tvo í dag.
Karlmaður um fimmtugt sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa beitt son sinn á áttunda ári grófri kynferðislegri misnotkun, á að baki langan sakaferil og hefur meðal annars verið dæmdur fyrir ofbeldisbrot. Frændi föðurins sætir einnig gæsluvarðhaldi, grunaður um sömu brot. Mennirnir voru handteknir fyrir síðustu helgi og úrskurðaðir í gæsluvarðhald, sem rennur út í dag, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Þeir verða yfirheyrðir í dag og í framhaldinu tekin ákvörðun um hvort lögð verður fram krafa um framlengingu gæsluvarðhalds yfir þeim. Við handtökur mannanna var húsleit gerð á heimilum þeirra og hald lagt á tölvubúnað. Marijúana og hvítt efni, sem grunur leikur á að sé kókaín, fannst við leitina. Lögregla vann að því í gær að leita í tölvum mannanna, en grunur leikur á að þar sé að finna myndir af börnum, þar á meðal syni mannsins, sem sýna þau á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Þeirri leit var ekki lokið þegar fréttin var skrifuð. Foreldrar drengsins eru skilin og dvaldi drengurinn stundum hjá föður sínum um helgar. Talið er að þá hafi kynferðisbrotin gegn barninu átt sér stað. Talið er að þau hafi verið mjög gróf og átt sér stað í nokkurn tíma. Málið barst ofbeldisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá barnaverndarnefnd Kópavogs. Í fréttum Bylgjunnar í gær kom fram að móðir drengsins og stjúpi hans hafi þurft að flýja heimili sitt með drenginn og börn sem þau eiga saman vegna hótana frá mönnunum tveimur, sem nú sitja bak við lás og slá. Þau vildu ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið. Faðirinn, sem grunaður er um að hafa brotið gegn drengnum, hefur hlotið tíu refsidóma, þar á meðal fyrir líkamsárásir, fjársvik, fíkniefnalagabrot og fleira. Síðast var hann dæmdur í fangelsi á árinu 2007 fyrir að ráðast á móður drengsins og föður hennar. Þá sparkaði hann í og skemmdi bíl afa drengsins. jss@frettabladid.is
Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Fleiri fréttir „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Sjá meira