Vilja kvóta til minnst 35 ára með rétti til að framlengja 6. apríl 2011 04:00 Formaður Samtaka atvinnulífsins segir samtökin leggja til að aðeins þrjú prósent aflaheimilda verði útlhutað að ráðherar en ekki fimmtán prósent eins og ríkisstjórnin stefni að.Fréttablaðið/GVA
Samtök atvinnulífsins hafa kynnt ríkisstjórninni útspil sem þau kalla „tillögu til sátta um efnislega útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi." „Tillagan felur í sér grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða frá því sem nú er og komið er verulega til móts við sjónarmið stjórnarflokkanna í þessum efnum," segir í yfirlýsingu frá SA. Lagt er til að gerðir verði samningar á milli ríkisins og útgerða um tímabundin afnot útgerða af kvótanum. „Afnotatími útgerða af aflahlutdeild verði til að minnsta kosti 35 ára. Samningarnir feli í sér að þegar hluti samningstímans er liðinn, til að mynda þegar hann verður hálfnaður, þá hafi útgerðir rétt til framlengingar þannig að jafn langur tími og liðinn er bætist við þann tíma sem eftir er," segir SA um tillögurnar. Innan svokallaðar sáttanefndar sem skilaði af sér niðurstöðum í fyrrahaust var rætt um allt frá tíu árum upp í 65 ár í þessu sambandi. Þá er lagt til að veiðigjald miðist við hagnað útgerðarfyrirtækja í stað reiknaðrar framlegðar eins og nú. Framlegð er upphæð sem svarar til tekna fyrirtækja að frátöldum breytilegum kostnaði en ekki föstum kostnaði á borð við vaxtakostnað. SA segir veiðigjaldið vera hátt í þrjá milljarða króna á fiskveiðiárinu 2010 til 2011.Jón BjarnasonVilmundur Jósefsson, formaður SA, segir samtökin leggja til að aðeins um þrjú prósent af heildarkvótanum verði tekin út fyrir kerfið til sérstakrar úthlutunar ráðherra en ekki fimmtán prósent eins og þeir telji stefna í af hálfu ríkisstjórnarnnar. „Það er alveg klárt að það verður ekki skrifað undir neina kjarasamninga á meðan verið er að rústa sjávarútveginum eins og er samkvæmt frumvarpi sem búið er að smíða eftir því sem við komust næst. Ég held að forystumenn ríkisstjórnarinnar séu ekki farnir að skilja það ennþá að við ætlum ekki að gefa þetta eftir," segir Vilmundur.Vilmundur JósefssonHvorki náðist tal af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra né Jóni Bjarnasyni sjávarútvegsráðherra vegna þessa máls í gær. Ekki náðist heldur í Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, formann sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður nefndarinnar, var erlendis og kvaðst ekki hafa kynnt sér tillögu SA. Þeir fulltrúar stjórnarflokkanna sem rætt var við í gær sögðu hins vegar að tillögur SA breyttu engu um afstöðu ríkisstjórnar. Það eigi bæði við um sjávarútvegsmálin sjálf og tengingu þeirra við kjaraviðræður SA og ASÍ. Vilmundur segir SA hafa átt tvo fundi með sjávarútvegsráðherra um tillögurnar. „Það er bara talað út og suður," segir formaður SA um þá fundi. gar@frettabladid.is
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira