Innlent

Dópaður með barn í bílnum

Karl á þrítugsaldri var stöðvaður við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Hann var undir áhrifum fíkniefna samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Með í för var barnið hans en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið.

Faðirinn, sem hafði þegar verið sviptur ökuleyfi, var handtekinn og fluttur á lögreglustöð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×