Innlent

Guðfríður Lilja sendir formanni og þingflokksformanni tóninn

Átökin innan þingflokks Vinstri grænna opinberuðust í þingsal Alþingis þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skaut föstum skotum á formann og þingflokksformann síns eigin flokks um leið og hún lýsti eindregnum stuðningi við Jón Bjarnason. Sjálfstæðismenn krefjast þingkosninga.

Vakin var athygli á því við upphaf þingfundar að hvorki Steingrímur J. Sigfússon formaður né Björn Valur Gíslason þingflokksformaður Vinstri grænna hefðu treyst sér til að lýsa yfir stuðningi við Jón Bjarnason og spurði Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður sjálfstæðismanna, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur um þessa stöðu.

Guðfríður sagði þar að sér þætti fjármálaráðherra og þingflokksformaður VG menn að meiri ef þeir afdráttarlaus styddu sinn ráðherra og segðu það hátt og skýrt. Hún sagði Jón Bjarnason hafa staðið manna best á þeirri grunnstefnu Vinstri grænna að hafna Evrópusambandsaðild og væri lykilmaður í þeim efnum innan VG.

,,Þannig að það væri náttúrlega gríðarlegt áfall fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð ef hún ætlaði nú að snúa baki við þessum hæstvirta ráðherra," sagði Guðfríður en bætti við að Jón væri að sjálfsögðu ekki hafinn yfir gagnrýni, frekar en aðrir ráðherrar.

,,Við skulum þá taka alla ráðherra þessarar ríkisstjórnar, allar embættisfærslur þeirra, öll vinnubrögð, til ítarlegrar skoðunar ef það á að taka Jón Bjarnason sérstaklega fyrir," sagði Guðfríður Lilja.

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði það blasa við öllum að ríkisstjórnin væri ekki starfhæf. Hún væri að liðast í sundur vegna stöðugra átaka og innanmeina dag eftir dag.

Flokksystir hennar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sagði brýnt að tala um framtíðarsýnina: ,,Hvernig við komum fjórtán þúsund manns aftur til starfa. Hvernig við leysum skuldavanda heimilanna," sagði Þorgerður Katrín og bætti við að þjóðin væri orðin þreytt á þessu og boða yrði til kosninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×