Guðfríður Lilja sendir formanni og þingflokksformanni tóninn 29. nóvember 2011 19:30
Átökin innan þingflokks Vinstri grænna opinberuðust í þingsal Alþingis þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skaut föstum skotum á formann og þingflokksformann síns eigin flokks um leið og hún lýsti eindregnum stuðningi við Jón Bjarnason. Sjálfstæðismenn krefjast þingkosninga. Vakin var athygli á því við upphaf þingfundar að hvorki Steingrímur J. Sigfússon formaður né Björn Valur Gíslason þingflokksformaður Vinstri grænna hefðu treyst sér til að lýsa yfir stuðningi við Jón Bjarnason og spurði Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður sjálfstæðismanna, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur um þessa stöðu. Guðfríður sagði þar að sér þætti fjármálaráðherra og þingflokksformaður VG menn að meiri ef þeir afdráttarlaus styddu sinn ráðherra og segðu það hátt og skýrt. Hún sagði Jón Bjarnason hafa staðið manna best á þeirri grunnstefnu Vinstri grænna að hafna Evrópusambandsaðild og væri lykilmaður í þeim efnum innan VG. ,,Þannig að það væri náttúrlega gríðarlegt áfall fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð ef hún ætlaði nú að snúa baki við þessum hæstvirta ráðherra," sagði Guðfríður en bætti við að Jón væri að sjálfsögðu ekki hafinn yfir gagnrýni, frekar en aðrir ráðherrar. ,,Við skulum þá taka alla ráðherra þessarar ríkisstjórnar, allar embættisfærslur þeirra, öll vinnubrögð, til ítarlegrar skoðunar ef það á að taka Jón Bjarnason sérstaklega fyrir," sagði Guðfríður Lilja. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði það blasa við öllum að ríkisstjórnin væri ekki starfhæf. Hún væri að liðast í sundur vegna stöðugra átaka og innanmeina dag eftir dag. Flokksystir hennar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sagði brýnt að tala um framtíðarsýnina: ,,Hvernig við komum fjórtán þúsund manns aftur til starfa. Hvernig við leysum skuldavanda heimilanna," sagði Þorgerður Katrín og bætti við að þjóðin væri orðin þreytt á þessu og boða yrði til kosninga.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Fleiri fréttir Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Sjá meira