Innlent

Lögreglan handtók þrjá innbrotsþjófa í nótt

Lögreglan handtók þrjá innbrotsþjófa á móts við Smáralind laust fyrir klukkan þrjú í nótt eftir að öryggisvörður hafði tilkynnt um innbrot í raftækjaverslunina Max í Kauptúni í Garðabæ.

Í bíl þjófanna fundust margar Play station leikjatölvur og starfærnar myndavélar, sem þjófarnir höfðu tekið til handaragagns. Þeir eiga allir innbrotaferil að baki og verða yfirheyrðir í dag. Andvirði þýfisins hleypur á hundruðum þúsunda króna.

Einnig var brotist inn í veiðihús við Hlíðarvatn í Selvogi í nótt, en ekki liggur fyrir hverju, eða hvort einhverju var stolið þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×