Innlent

Mikið um árekstra í dag

Árekstur.is.
Árekstur.is.
Alls urðu 20 árekstrar í dag, þar af einn verulega harður árekstur þar sem flytja þurfti tvo á spítala til frekari aðhlynningar. Sá árekstur var á Dalvegi í morgun samkvæmt upplýsingum frá Árekstri.is Báðir bílarnir voru að auki óökufærir.

Þá urðu tveir fjögurra bíla árekstrar, annarsvegar á Miklubrautinni, og svo bílastæði Orkuhússins við Suðurlandsbraut.

Þá varð einnig harður árekstur á Bíldshöfða. Önnur bifreiðin var óökufær eftir það óhapp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×