Innlent

Með raflostbyssu og testósteron í sprautu

Héraðsdómur Reykjaness
Héraðsdómur Reykjaness
Karlmaður á á fertugsaldri hefur verið dæmdur í fangelsi í einn mánuð fyrir fíkniefnalagabrot og brot á vopnalögum.

Maðurinn var meðal annars dæmdur fyrir að hafa raflostbyssu í fórum sínum þegar húsleit var gerð hjá honum í mars fyrra. Þar fannst einnig lítilræði af marijúana og hormónalyfi.

Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir að hafa 108 grömm af amfetamíni en var ekki dæmdur fyrir það, þar sem annar maður játaði að eiga stærstan hluta efnisins. Einnig fundust 62 kannabisplöntur hjá honum í júní í fyrra og lítilræði af marijúana.

Maðurinn játaði brot sín fyrir dómara en hann hefur áður verið dæmdur í fangelsi, meðal annars fyrir fíkniefnalagabrot og líkamsárás.

Samkvæmt dómi verður amfetamínið gert upptækt sem og marijúana, kannabisplöntur, kannabislauf, raflostbyssan, gróðurhúsalampi, hitamælir, 4 millilítrar af stungulyfinu Testosteron og einn millilítri af Deca-Durabolin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×