Innlent

Vill sérstakan neyðarsjóð fyrir sveitarfélög í vandræðum

Álftanes
Álftanes
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga vill setja upp sérstakan neyðarsjóð fyrir sveitarfélög sem lenda í greiðslu- og rekstrarvandræðum. Forsætisráðherra segir að skilgreina þurfi slíkan sjóð mjög þröngt.

Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga setti í dag fjámálaráðstefnu sveitarfélaganna. Í ræðu sinni fór Halldór meðal annars yfir fjárhagstöðu sveitarfélaganna.

„Sum sveitarfélög hafa komist í gegnum erfiðleikana án mikils niðurskurðar í rekstri og þjónustu á sama tíma og önnur hafa orðið fyrir miklum fjárhagslegum áföllum, sérstaklega þau sem voru í mikillri þenslu á árunum fyrir hrun og skulduðu mikið í erlendum gjaldmiðlum," segir Halldór.

Sveitarfélög hafa ákveðin úrræði ef þau lenda í greiðslu- og rekstrarvandræðum, til dæmis að leggja álag á útsvar. Þá getur komið til þess að önnur sveitarfélög komi að uppgjöri eins og nú er að gerast á Álftanesi sem ákveðið hefur verið að fái 300 milljónir króna af 700 milljóna aukframlagi ársins í jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

„Það er hins vegar ranglátt að gera það með þeim hætti sem fyrr segir þar sem einungis sum sveitarfélög, þau hin sömu og þurfa á aukaframlagi að halda greiði inn í slíkt uppgjör. Þess vegna þurfum við að velta fyrir okkur öðrum úrræðum og hugsa fram í tímann. Mér finnst koma til greina að setja upp sérstakan neyðarsjóð sem hugsaður er fyrir slík tilfelli."

Hann segir greiðslur úr slíkum sjóð eigi að vera háðar mjög störngum skilyrðum til dæmis um fjárhaldsstjórn, álag á útsvar og fleira. Undir það tekur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

„Hann er að hugsa þetta fyrir verst stöddu sveitarfélögin og það er alveg ljóst að slíkur neyðarsjóður þarf að vera mjög þröngt skilgreindur. Allar útgreiðslur og sveitarfélögin þurfa að vera búin að nýta alla sína tekjustofna en ég held að það sé eðlilegt að sveitarfélögin skoði þetta. Jöfnunarsjóðurinn hefur verið það að mörgu leyti að hjálpa verst stöddu sveitarfélögunum og það þarf þá að skoða það í sambandi við það," segir Jóhanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×