Innlent

Kvennó nýtir sér Miðbæjarskólann

Mynd/GVA
Kvennaskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun gamla Miðbæjarskólann sem ríkið keypti af borginni á síðasta ári. Húsið var tekið til gagngerra breytinga í samstarfi við húsafriðunarnefnd áður en skólinn tók við aðstöðunni. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir að almenn ánægja ríki meðal nemenda og kennara með breytingarnar.

Nemendur hafa fengið aðstöðu til íþróttaiðkana í endurnýjuðum íþróttasal og veggir hafa verið teknir niður til að stækka stofur svo þær nýtist betur til kennslu. Miðbæjarskólinn var reistur árið 1898 og er tveggja hæða timburbygging á steinhlöðnum kjallara. Húsið er sögufrægt en í því var meðal annars rekinn spítali þegar spænska veikin herjaði á borgarbúa 1918.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×