Lögreglan braut ekki lög við innkaup 18. október 2011 11:42 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ,,
Ég hef sannfærst um að embætti ríkislögreglustjóra hafi farið að lögum í innkaupum sínum. Sú mynd sem dregin hefur verið upp í fjölmiðlum af embættinu er ómakleg og röng. Hins vegar eru þessi mál almennt ekki í nógu góðum farvegi og því eru tilteknir þættir þeirra teknir til sérstakrar skoðunar," segir Ögmundur Jónasson innanríkisáðherra, í tilkynningu frá Innanríkisráðuneytinu, um innkaup ríkislögreglustjóra á tólum og tækjum fyrir lögregluna. Niðurstaða innanríkisráðuneytisins er sú að dregin hafi verið upp villandi mynd af málinu þegar gefið sé til kynna að lögreglan hafi ekki farið að lögum og reglum við innkaup. Í tilkynningu segir að hinsvegar sé nauðsynlegt að koma innkaupum á vegum lögregluembætta í landinu í markvissari farveg eins og Ríkisendurskoðun leggur til. „Ráðuneytið hefur falið ríkislögreglustjóra í samvinnu við lögregluembætti og Ríkiskaup að leggja fram eigi síðar en 1. febrúar tillögur að umbótum í innkaupum á búnaði og tækjum til lögreglunnar. Vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar um að innanríkisráðuneytið segi til um hvort það samrýmist störfum lögreglumanna að eiga og/eða starfa hjá fyrirtækjum sem löggæslustofnanir eiga í viðskiptum við er rétt að taka fram að á vegum ríkislögreglustjóra er nú að beiðni ráðuneytisins unnið að gerð reglna um aukastörf lögreglumanna. Að málinu vinnur vinnuhópur á vegum ríkislögreglustjóra með aðkomu Landssambands lögreglumanna og Lögregluskóla ríkisins og skulu tillögur hans einnig liggja fyrir 1. febrúar næstkomandi. Í kjölfar ábendinga Ríkisendurskoðunar hefur innanríkisráðuneytið einnig ritað forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins og kynnt fyrir þeim innkaupastefnu ráðuneytisins og stofnana þess sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ritaði undir 14. október. Innanríkisráðherra segir þetta mikilvægt skref og kveikjan hafi verið bréf Ríkisendurskoðunar um innkaupamál," segir ennfremur í tilkynningunni.
Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira