Innlent

Asnaeyru rædd á Alþingi í dag

Ákvörðun Alcoa að hætta við álver á Bakka varð tilefni snarpra orðaskipta á Alþingi í dag þar sem þingmenn ríkisstjórnarinnar tókust á um það við stjórnarandstöðuna hver hefði dregið hvern á asnaeyrunum í málinu.

Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinar, sem hóf umræðuna, sagði langsótt að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir ákvörðun Alcoa. Það hefði hins vegar verið farsælt að losa um einokunarstöðu þess að orkunni.

Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, sagði áhugavert að Alcoa teldi sig ekki samkeppnishæft um orkuna og Mörður Árnason, Samfylkingunni, óskaði Þingeyingum til hamingju með að loksins skyldi hafa slökknað á þessu villuljósi. Menn ættu að láta sér þetta að kenningu verða.

Höskuldur Þórhallsson, Framsóknarflokki, sagði augljóst hver stjórnaði Landsvirkjun. Fingraför Vinstri grænna væru út um allt. Brot úr umræðunum á Alþingi í dag fylgja hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×