Capello vongóður um að Rooney komi með á EM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. október 2011 10:45 Nordic Photos / Getty Images
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, segist vongóður um að Wayne Rooney geti komið með enska landsliðinu á EM í Póllandi og Úkraínu í sumar þrátt fyrir þriggja leikja bannið sem hann var dæmdur í á dögunum. Bannið fékk Rooney fyrir að sparka niður andstæðing í leik Englands og Svartfjallalands í undankeppni EM 2012 fyrr í mánuðinum. Það þýðir að hann mun missa af öllum leikjum Englands í riðlakeppninni og gæti í fyrsta lagi spilað með liðinu í fjórðungsúrslitum keppninnar - ef England kemst upp úr riðlinum án Rooney. Capello var að ræða um leikmannahópinn sem hann ætlar að taka með sér og gaf þá ansi sterka vísbendingu um að hann ætli sér að velja Rooney í hópinn. „Við þurfum á leiðtogum að halda í þessum leikjum. Jack Wilshere er ótrúlegur vegna þess að hann er svo ungur en við þurfum líka reynda leikmenn eins og John Terry, Rio Ferdinand og Scott Parker - sem og vonandi Wayne Rooney.“ Hann segir að England eigi marga af bestu ungu leikmönnum heimsins í dag. „Það eru margir ungir leikmenn í heiminum betri en þeir ungu leikmenn sem við eigum. En það þarf samt að bíða til loka tímabilsins til að ákveða hvort þeir séu upp á sitt besta og hvort þeir eru tilbúnir að spila með þeim allra bestu.“ Enska knattspyrnusambandið mun vera nú að íhuga hvort það eigi að áfrýja þriggja leikja banni Rooney.
Mest lesið Heimsmeistarinn ætlar að slá brautarmetið Sport Leik Frakklands á HM í kvöld gæti verið frestað Fótbolti Baulað á enska landsliðið Fótbolti Grænhöfðaeyjar grátlega nálægt því að senda heimsmeistarana heim Fótbolti „Ég kom fram og mamma var grátandi“ Sport ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Íslenski boltinn Kanada - Marokkó | 16-liða úrslitin hefjast Fótbolti Vill endurgera AI myndband sem sprengdi netið Fótbolti Fékk yfir tuttugu milljónir fylgjenda á mótinu Fótbolti Brautarmet féllu hvert á fætur öðru í Dyrafjallahlaupinu Sport Fleiri fréttir ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Endurkoman dugði ekki í síðasta leiknum á EM Leik Frakklands á HM í kvöld gæti verið frestað Kanada - Marokkó | 16-liða úrslitin hefjast Markalaust í rjómablíðunni á Suðurnesjunum Óvissa er um framtíð Rashford ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Baulað á enska landsliðið Maður dagsins á HM: Fékk viðurnefnið „slátrarinn“ Fékk yfir tuttugu milljónir fylgjenda á mótinu Glæsimark Sveindísar innsiglaði sigurinn Kólumbía áfram með eins marks sigri Vill endurgera AI myndband sem sprengdi netið Átti Yamal skilið að vera maður leiksins? Jóhannes Karl: „Erum hérna til þess að sækja sigra“ Sunderland hafnar tilboði gamla þjálfara hans Fjör á Seltjarnarnesi og Afturelding heldur toppsætinu Jón Þór Hauksson: „Með ólíkindum að við klárum ekki þennan leik“ Grænhöfðaeyjar grátlega nálægt því að senda heimsmeistarana heim Heldur toppsætinu í Færeyjum Nýr þjálfari Ronaldo og félaga Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Verið er að selja miða á 16-liða úrslitin á margar milljónir Egyptaland brást ekki bogalistin í vítaspyrnukeppninni Mo Salah klár fyrir kvöldið Haaland útskýrir kossinn Átta leikmenn Túnis féllu á lyfjaprófi Þýska sambandið vill ræða við Klopp eftir afsögn Nagelsmann Lögreglumaður lést eftir árás þar sem sýnt var frá HM-leik á risaskjá Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Sjá meira