Ósammála túlkun forsetans á tillögum stjórnlagaráðs JMG skrifar 2. október 2011 12:19 Eiríkur Bergmann Einarsson ásamt Salvöru Nordal og Ómari Ragnarssyni sem bæði voru stjórnlagaráðsfulltrúar. Mynd/ Anton.
Stjórnlagaráðsfulltrúi segir túlkun forseta á tillögum stjórnlagaráðs vera allt önnur en ráðið lagði upp með. Hann segir það eðlilega kröfu ráðsins að valdamenn reyni ekki að afbaka tillögurnar eftir pólitískum hagsmunum. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur og stjórnlagaráðsfulltrúi segir það eftirtektarvert hversu mikið forseti lagði upp úr tillögum stjórnlagaráðs í ræðu sinni við setningu Alþingis í gær. Hann segir hins vegar túlkun forsetans ekki vera þá sömu og ráðið hafði ætlað sér. „Það var ætlun okkar í stjórnlagaráði að vægi forsetaembættisins yrði með nokkuð svipuðu sniði í okkar tillögum miðað við það sem nú er, það þurfti auðvitað að skýra ákveðna þætti vegna óljósrar stöðu hans í núverandi stjórnaskrá og við vildum hreinsa þetta upp en ekkert endilega auka vægi embættisins," segir Eiríkur Bergmann. Til dæmis varðandi stjórnarmyndunarviðræður þá héld forseti því fram í ræðu sinni í gær að hann muni samkvæmt tilögum ráðsins sjálfur hafa frumkvæði að viðræðum við einstaka þingmenn og þingflokka í stað þess að taka valkostum stjórnmálaflokka. Þetta segir Eiríkur ranga túlkun, forseti eigi einungis að gegna hlutverki þingforseta á fyrsta þingfundi þegar forsætisráðherra er kosinn á alþingi. „Þannig að stjórnarmyndunin er í höndum þingsins en ekki höndum forseta í okkar tillögum þó svo að hann stýri þeim fundi þá er það ekki eitthvað sem felur í sér mat á því hver eigi að verða forsætisráðherra, það er alls ekki þannig og það halda því fram að hann hafi ýjað að því í þessari yfirferð sinni í gær," segir Eiríkur. „Maður tekur eftir því að það eru allskonar öfl í stjórnmálunum sem að vilja túlka það með mismunandi hætti og þegar ríkur vilji er til þess að túlka og jafnvel mistúlka plagg sem þetta þá geta menn auðvitað gengið ansi langt í þeim efnum," bætir Eiríkur jafnframt við.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira