Blóðugur niðurskurður hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarðar 3. október 2011 15:04 Ísafjörður.
Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða (HV) nemi rúmum einum milljarði króna á næsta ári sem jafngildir um 31,7 milljóna króna lækkun að raungildi frá fjárlögum ársins 2011 samkvæmt frétt sem birtist á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði í dag. Þar segir að í fjárlagafrumvarpi næsta árs komi fram að framlag til HV lækki um 30,3 milljónir króna sem er í samræmi við áform um lækkun á ríkisútgjöldum, þar af eru 15,4 milljónir króna vegna frestunar á hagræðingu í fjárlögum 2011. Vegna aukinnar endurgreiðslu á virðisaukaskatti af aðkeyptri tölvuþjónustu hækkar framlagið um 1,4 milljónir króna. Þröstur Óskarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar, segir í viðtali við bb.is að niðurskurðurinn, sem bætist við niðurskurð frá því í ár, muni hafa í för með sér skerðingu á þjónustu og fækkun á starfsfólki. „Það var búið að kynna fyrir forstöðumönnum heilbrigðisstofnana að þetta yrði í þessum dúr,“ sagði Þröstur aðspurður um málið á vef bb.is. „Við þurfum á næstu vikum að gera okkur grein fyrir því hvernig hægt er að mæta þessu en því miður er útlit fyrir að það verði ekki hægt nema með skerðingu á þjónustu og fækkun á starfsfólki.“ Nánar er fjallað um málið á vef bb.is.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Fleiri fréttir Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Sjá meira