Engin olíuvinnsla á Jan Mayen-svæðinu nema öryggið sé tryggt 3. október 2011 18:48
Annað olíuleitarútboð Íslendinga á Drekasvæðinu hófst formlega í dag en ekki kemur í ljós fyrr en eftir sex mánuði hvort einhver hafi áhuga á að bora. Utanríkisráðherra Noregs segir að tryggja verði viðbúnað vegna mengunarslysa áður en vinnsla verður leyfð á Jan Mayen-svæðinu. Þetta er í annað sinn sem Íslendingar freista þess að fá olíufélög heims til að leita en fyrsta tilraun fyrir rúmum tveimur árum misheppnaðist þegar tveir umsækjendur hættu báðir við. Önnur tilraun átti að hefjast fyrr í sumar en það klúðraðist einnig þegar lagabreytingar dagaði uppi á Alþingi. Til stóð að tilboðin í annarri umferð yrðu opnuð 1. desember næstkomandi en nú er ljóst að það verður ekki fyrr en í byrjun apríl á næsta ári. Íslendingar hafa samráð við Norðmenn um útboðið vegna samnings um gagnkvæman nýtingarrétt milli þjóðanna á Jan Mayen-hryggnum. Norðmenn eru einnig farnir að undirbúa olíuleit við Jan Mayen en meðal þess sem utanríkisráðherra Noregs ræddi við íslenska ráðamenn fyrir helgi var auðlindanýting á Norðurslóðum. Ríkisstjórn Noregs vill fara varlega í að leyfa olíuleit á nýjum svæðum norðan heimskautsbaugs og segir Jonas Gahr Støre utanríkisráðherra að menn geti ekki hafist handa nema vera alveg vissir um að að hafa nægilega gott viðbragðskerfi fyrir umhverfið, svo fiskimið skaðist ekki. Hann segir að í 40 ár hafi Norðmenn farið sér hægt, skref fyrir skref, á grundvelli þeirrar þekkingar sem hafi verið aflað. Ef starfsemi hefjist á Jan Mayen-svæðinu verði þar mörg erfið verkefni til að tryggja öryggið. „Við setjum okkur það skilyrði fyrir fram að við höldum ekki áfram nema okkur finnist við hafa nægilega góðan viðbúnað," segir Jonas Gahr Støre.
Mest lesið Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Fleiri fréttir Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Sjá meira