Fjallað um Facebook í Háskólanum 4. október 2011 11:04
Í dag fer fram í Háskóla Íslands fyrirlestur um Facebook sem fluttur er af Daniel Miller, prófessor í mannfræði við University College í Lundúnum. Þar verður fjallað um fyrstu mannfræðirannsóknina sem gerð hefur verið á afleiðingum Facebook-notkunar. Fyrirlesturinn, sem haldinn er í boði Félags- og mannvísindadeildar og Mannfræðifélags Íslands, hefst klukkan þrjú í stofu 104 á Háskólatorgi. „Fyrirlestur Millers gerir grein fyrir fyrstu mannfræðirannsókninni á afleiðingum Facebook-notkunar sem var gerð á Trinidad,“ segir í tilkynningu frá Háskólanum. „Þar rannsakaði Miller hvernig samskiptasíðan hefur breytt félagslegum samskiptum og gefa niðurstöðurnar til kynna að notkun tengslasíða muni breytast töluvert í framtíðinni og verði hugsanlega mun mikilvægari fyrir eldra fólk en yngra. Um rannsóknina má fræðast nánar í nýútgefinni bók Millers, Tales from Facebook (2011), og byggir fyrirlesturinn talsvert á þeirri bók.“ Þá segir að í fyrirlestrinum noti Miller einnig rannsóknina til að lýsa nýju sviði innan mannfræðinnar, stafrænni mannfræði, en hann hefur nú komið á fót kennslu og rannsóknum á því sviði við UCL. „Mannfræðin hefur ávallt beint sjónum sínum að félagslegum tengslum og ætti því að hafa sérstakan áhuga á rannsóknum á tengslasíðum á netinu. Nú nota um 600 milljónir samskiptasíðuna Facebook og notendum hennar fer fjölgandi á stöðum eins og Indónesíu og Tyrklandi. Flestar akademískar rannsóknir á síðunni hafa þó beinst að upphafi hennar, uppgötvun og notkun í Bandaríkjunum.“ Daniel Miller hefur stundað rannsóknir á Trinidad, Jamaica, Indlandi og London. Þær hafa einkum beinst að efnismenningu, neyslu og tengslum fólks við hluti á borð við gallabuxur, heimili, fjölmiðla og bíla. Hann hefur gefið út fjölda greina og bóka, til að mynda The Comfort of Things (2008), The dialect of shopping (2001), Anthropology and the Individual (2009) og Stuff (2009).
Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira