Eigandi byssukúlnanna gaf sig fram 4. október 2011 14:54
Maður á besta aldri gaf sig fram við lögreglu í dag eftir að fréttir bárust af því að tvær byssukúlur hefðu fundist fyrir framan Alþingishúsið í morgun. Maðurinn reyndist eiga skotin en hann segist hafa misst þau þegar hann stóð upp við þinghúsið þegar hann var að mótmæla í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var maðurinn með skotin í brjóstvasanum þar sem hann hafði verið á gæsaveiðum sömu helgi. Hann hefði gleymt því að hann væri með skotin í vasanum. Maðurinn reyndi að finna skotin í gærkvöldi eftir að hann missti þau, en fann ekki vegna myrkurs. Maðurinn, sem er vanur veiðimaður, hefur gert grein fyrir ferðum sínum í gær en ekkert bendir til annars en hann hafi verið á Austurvelli í gærkvöld í friðsömum tilgangi. Að endingu má geta þess að lögreglan hefur rifjað upp með honum helstu reglur um vörslu og meðferða skotfæra. Af framansögðu telur lögreglan komna líklega skýringu á skothylkjunum sem fundust við Alþingishúsið. Þingheimur var sleginn vegna málsins. Forseti Alþingis fundaði meðal annars með formönnum stjórnmálaflokkanna fyrr í dag eftir að kúlurnar fundust.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira