Ætlaði að fá sér pylsu en féll ofan í fornleifagrunn 4. október 2011 15:38 Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Reykjavíkurborg bótaskylda vegna slyss sem karlmaður varð fyrir í Tryggvagötu í Reykjavík aðfararnótt 7. október 2007, þegar hann féll niður rúma þrjá metra þar sem fornleifauppgröftur stóð yfir. Maðurinn var á heimleið fótgangandi ásamt unnustu sinni þegar þau ákváðu að koma við á pylsusölu Bæjarins bestu á Tryggvagötu. Maðurinn staðnæmdist við svæði þar sem fornleifauppgröftur fór fram. Svæðið afmarkast í grófum dráttum af Tryggvagötu, Pósthússtræti, Geirsgötu og Kalkofnsvegi. Svæðið var girt af en svo virðist sem hluti girðingarinnar hafi fallið. Maðurinn fór að pissa en sá ekkert fyrir myrkri og féll fram fyrir sig niður í grunninn, sem var 3,3 metrar á dýpt. Maðurinn stórslasaðist. Hann margkjálkabrotnaði auk þess sem tennur hans brotnuðu. Þá hlaut hann einnig alvarlega höfuðáverka. Gekkst hann undir skurðaðgerð á sjúkrahúsinu síðar sama dag og slysið varð. Í úrskurði héraðsdóms segir að ekki hafi verið að sjá af yfirlitsmyndum lögreglunnar af slysstað að áberandi viðvörunarskilti hafi verið á svæðinu. Þá var niðurstaða sérfræðinga að girðingin gat verið ótraust miðað við aðstæður auk þess sem svæðið var ekki upplýst. Héraðsdómur dæmdi því borgina bótaskylda.
Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Innlent Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Innlent Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Innlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Segist eiga fund með Pútín Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fleiri fréttir Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Sjá meira