Vill "ráðgefandi þjóðaratkvæði“ um tillögur stjórnlagaráðs Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. október 2011 19:02
Forsætisráðherra segir að því stefnt að bera tillögur stjórnlagaráðs undir þjóðina í „ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu" þegar stjórnlaga- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur lokið störfum. Hún býst við að formlegar breytingar á stjórnarskránni verði síðan afgreiddar áður en þing verður rofið fyrir kosningarnar 2013. Eftir bankahrunið hafa umræður um breytingar á stjórnarskránni, þar á meðal um beina kosningu ráðherra, gerst háværari. Færð hafa verið rök fyrir því í seinni tíð að of mikil samþjöppun valds hafi átt sér stað og skilin milli framkvæmar- og löggjafarvalds orðið óglögg. Sumir hafa orðað þetta þannig að á tímabili hafi löggjafinn verið orðinn að „stimpilpúða" framkvæmdarvaldsins. Stjórnarskrárbreytingar hafa lengi verið Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra hugleiknar. Í nóvember 1994 lagði hún fram frumvarp til stjórnskipunarlaga og frumvarp til laga um stjórnlagaþing. Samkvæmt frumvörpunum skyldi efnt til þjóðkjörins stjórnlagaþings sem endurskoða skyldi stjórnarskrána og þ.á.m taka skil löggjafarvalds og framkvæmdarvalds sérstaklega til athugunar. Jóhanna bauð sig síðan fram til þings árið 1995 undir merkjum Þjóðvaka en á meðal stefnumála var að gera þyrfti „grundvallarbreytingar á stjórnskipun landsins með auknum rétti til þjóðaratkvæðis, jöfnun atkvæða og raunverulegum aðskilnaði löggjafar- og framkvæmdavalds, t.d. að ráðherra víki af þingi eða komið verði á beinni kosningu til framkvæmdavaldsins," en grein sem Jóhanna ritaði í Morgunblaðið á þessum tíma bar heitið „Þrígreining valds í íslensku þjóðfélagi í hættu." Í tillögum stjórnlagaráðs, sem nú eru til umfjöllunar fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, er ekki lagt til að skerpt verði á aðgreiningu löggjafar- og framkvæmdarvalds með afnámi þingræðisreglunnar, enda er þar gert ráð fyrir að þingræðisreglan verði áfram einn af hornsteinum íslenskrar stjórnskipunar (Í 1. gr. tillagna ráðsins segir: „Ísland er lýðveldi með þingræðisstjórn.") Í tillögunum er gert ráð fyrir að þingið kjósi forsætisráðherra. (90.gr.) Þar kemur hins vegar fram að ráðherrar hafi ekki atkvæðisrétt á Alþingi og verði alþingismaður skipaður ráðherra víki hann úr þingsæti á meðan hann gegnir embættinu og varamaður taki þá sæti hans. (89. gr.) Tillögurnar endurspegla því að hluta þau sjónarmið um að skerpa skil milli þings og framkvæmdarvalds með því að þingmenn sitji ekki í ríkisstjórn. Nokkrir stjórnlagaráðsmenn hafa viðrað þá skoðun að þjóðin eigi rétt að kjósa um tillögur ráðsins óbreyttar. Jóhanna Sigurðardóttir segir að það sé hægt að gefa þjóðinni tækifæri að segja álit sitt á tillögunum án þingrofs. „Það er auðvitað hægt að setja þetta í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu og þá þarf ekki að rjúfa þing," segir hún. Forsætisráðherra segir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins muni fara ítarlega yfir tillögur stjórnlagaráðs. „Nefndin mun eftir atvikum kalla til sín stjórnlagaráðsmenn og sérfræðinga sem verða henni til halds og trausts og menn fara yfir þetta. Finni menn einhverja hnökra á (tillögunum) er spurning hvort ekki sé hægt að gera þá bragarbót á. Síðan hefði ég viljað sjá fljótlega á næsta ári það yrði farið með þær hugmyndir, kannski endurbættar, í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu." Jóhanna segir að það yrði síðan á árinu 2013 sem gengið yrði endanlega frá nýrri stjórnarskrá. „Ég sé fyrir mér að það yrði fyrir kosningarnar árið 2013 sem gengið yrði endanlega frá tillögum að nýrri stjórnarskrá en hún færi í millitíðinni í gegnum þennan feril og ráðgefandi þjóðaratkvæði." thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira