Koma titrandi og skjálfandi af vestfirskum vegum 5. október 2011 20:32
Slæmar samgöngur á Vestfjörðum hamla uppbyggingu atvinnulífs og skerða samkeppnishæfni fjórðungsins. Þessi viðhorf eru áberandi hjá atvinnurekendum sem Kristján Már Unnarsson ræddi við á sunnanverðum Vestfjörðum og birtust í fréttum Stöðvar 2. Kolbrún Pálsdóttir, hótelstýra í Bjarkalundi, segir að lýsingar ferðamanna sem kynnast holóttum vegum og þvottabrettum séu skrautlegar. Þeir komi titrandi og skjálfandi, óttist að fá heilahristing og þakka fyrir að halda nýrunum. En þetta snýst ekki bara um meiri þægindi í akstri heldur beinharða peninga. Fiskurinn þarf að komast ferskur til Keflavíkur í flug á markaði erlendis, eins og Kristín Magnúsdóttir, framleiðslustjóri Þórsbergs á Tálknafirði, greinir frá. Til þess þurfi góða vegi og svo fiskurinn komist með flutningabílum samdægurs. Nýtt fiskeldisfyrirtæki í uppbyggingu, Fjarðalax, sér fram á mikla flutninga. Jón Örn Pálsson, svæðisstjóri Fjarðalax, segir að innan tveggja ára þurfi fyrirtækið að flytja 5.000 tonn af fóðri inn á svæðið og 5.000 tonn af fiski á markaði erlendis. Flutningafyrirtækin geti ekki gert lág tilboð nema vegirnir séu góðir og það sé staðreynd að vondir vegir á Vestfjörðum kalli á meira viðhald á bílum. Auk þess skorti mjög á öryggi í flutningum. Til lítils er að byggja upp ferðaþjónustu allt árið ef vegirnir eru ófærir. Kolbrún segir að Bjarkalundi sé lokað í endaðan nóvember enda séu vegirnir þá venjulega orðnir illfærir. Keran Ólason, ferðaþjónustubóndi í Breiðavík, trúir ekki öðru en að ríkisvaldið standi við sitt. Umferðin sé að aukast ár frá ári og vegirnir þoli ekki þessa miklu umferð. Það þurfi átak í vegamálum.
Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira