Þjálfari AEK fékk milljón evra fyrir starfslokin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. október 2011 10:45 Manolo Jimenez, fyrrum þjálfari AEK. Nordic Photos / Getty Images
Þó svo að gríska félagið AEK Aþena eigi í miklum fjárhagslegum erfiðleikum var engu að síður ákveðið að reka þjálfarann Manuel Jimenez og borga honum eina milljón evra í starfslokagreiðslu, eftir því sem kemur fram í grískum fjölmiðlum. Félagið tilkynnti seint í gærkvöldi að Jimenez hafi látið af störfum og er fullyrt í Grikklandi að hann hafi einfaldlega verið rekinn. AEK er ofarlega í grísku úrvalsdeildinni en liðið hefur þó tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Evrópudeild UEFA, nú síðast fyrir Sturm Graz á heimavelli, 2-1. Félagið mun hafa ákveðið að reka Jimenez eftir þann leik en það hafi tafist vegna þess að erfiðlega gekk að semja um starfslok. Alls tóku viðræðurnar um tíu klukkustundir en á endanum var samið um að Jimenez fengi um eina milljón evra í starfslokagreiðslu. „Manolo verður ávallt hluti af sögu okkar félags eftir að liðinu tókst undir hans stjórn að vinna bikarkeppnina í fyrsta sinn í langan tíma í fyrra," sagði í yfirlýsingu AEK. „Ég er ekki að segja bless heldur sjáumst síðar," sagð Jimenez. „En ég tel að nú sé rétti tíminn fyrir breytingar." Nikos Costenoglou er orðaður við starfið en hann lék áður með AEK og hefur starfað við þjálfun hjá félaginu. Arnar Grétarsson er yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK. Hann sagði við Fótbolta.net í gær að félagið ætti í fjárhagserfiðleikum en félagið hefur til að mynda ekki greitt Blikum neitt fyrir kaupin á Elfari Frey Helgasyni. Þá eiga þeir Elfar Freyr og Eiður Smári Guðjohnsen inni laun hjá félaginu. Breiðablik hefur tilkynnt málið til Knattspyrnusambands Evrópu.
Fótbolti Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Sjá meira