Innlent

Kofi Annan kemur til Íslands í dag

Kofi Annan.
Kofi Annan.
Kofi Annan, fyrrum framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels, kemur til Íslands síðdegis í dag.

Kofi Annan flytur á morgun föstudag upphafsræðuna á hátíðarmálþingi Háskóla Íslands í tilefni af hundrað ára afmæli skólans. Málþingið ber heitið „Áskoranir 21. aldarinnar“ og hefst kl. 13:00 í Háskólabíói.

Í fyrramálið heimsækir Kofi Annan í fylgd forseta Hellisheiðarvirkjun þar sem íslenskir vísindamenn og sérfræðingar munu kynna honum kosti jarðhitanýtingar fyrir þróunarlönd, einkum Afríku.

Kofi Annan kemur til Íslands í boði forseta Íslands og Háskóla Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×