Tevez á innkaupalistanum hjá Anzhi í Rússlandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2011 16:00 Carlos Tevez. Mynd/Nordic Photos/Getty
Forráðamenn rússneska liðsins Anzhi Makhachkala ætla sér að reyna að kaupa vandræðabarnið Carlos Tevez frá Manchester City og vilja tefla Argentínumanninum fram við hlið Samuel Eto'o sem félagið keypti frá Inter Milan í ágúst. Tvoi Den-dagblaðið í Rússlandi segir að Anzhi-menn sjái sér leik á borði þar sem að Tevez muni líklega ekki spila aftur fyrir Roberto Mancini hjá City eftir að Tevez neitaði að koma inn á í Meistaradeildarleik á móti Bayern Munchen. „Það eru góðar aðstæður til að kaupa Tevez," hafði blaðamaður Tvoi Den eftir heimildarmanni hjá rússneska félaginu sem kemur frá Makhachkala, 460 þúsund manna borg við Kaspíahafið. Anzhi keypti Samuel Eto'o frá Inter fyrir 21 milljón evra á dögunum og hefur einnig samið við Brasilíumanninn Roberto Carlos og rússneska landsliðsmanninn Yuri Zhirkov sem lék áður með Chelsea. Eigandinn er tilbúinn að dæla peningum í félagið og Tevez þarf örugglega ekki að kvarta mikið yfir launum sínum þar. Það hefur lítið gengið hjá Anzhi í rússnesku deildinni þar sem liðið er aðeins í áttunda sæti. Anzhi er aðeins búið að skora 29 mörk í 26 leikjum og því vonast menn eftir því að Tevez geti hresst vel upp á sóknarleik liðsins.
Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Fleiri fréttir Frankfurt - FH | Tekst FH-ingum aftur að hrella þær þýsku? Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ Sjá meira