Ögmundur: Ráðning Páls undarleg Erla Hlynsdóttir skrifar 7. október 2011 18:36
Innanríkisráðherra segir ráðningu Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins vera undarlega. Hann hefur því bæst í hóp þeirra sem gagnrýna ráðninguna. Rökstuðnings er að vænta frá stjórn Bankasýslunnar innan tíðar. Við sögðum frá því í fréttum okkar á sunnudag að Páll hafi verið ráðinn í stöðuna þrátt fyrir að vera sá umsækjandi sem hafði minnstu menntunina og minnstu reynsluna af störfum fyrir bankastofnanir. Þá sagði forstjóri Banaksýslunnar að faglega hafi verið staðið að ráðningunni. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sendi í gærkvöld bréf á stjór Bankasýslu ríkisins þar sem óskað er eftir formlegum skýrungum á ferli ráðningarinnar. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, tekur undir með Steingrími. „Óháð því hvað mér finnst um þennan einstakling, þá finnst mér þetta undarleg ráðning," segir Ögmundur í samtali við fréttastofu. Hann segir að sér finnist mikil áhöld um að þeir einstaklingar sem áttu beina aðkomu að ákvörðunum um bankakerfið í aðdraganda hrunsins veljist til ábyrgðarstarfa fyrir hönd hins opinbera á því sviði, enda hafi fjármálaráðherra óskað eftir skýringum. Ráðningin var rædd á Alþingi í gær þar sem Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, sagði hana vera hneyksli. Í dag bættist svo Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri græanna, í hóp þeirra sem gagnrýna ráðninguna og skrifar á heimasíðu sína að hún sé „þvílíkt rugl."
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira