Óbyggðanefnd úrskurðar um Norðurland 8. október 2011 13:13 Hér má sjá hvernig starfi óbyggðanefndar hefur miðað. Mynd:obyggdanefnd.is
Óbyggðanefnd mun á mánudaginn kemur kveða upp úrskurði í deilumálum um eignaréttarlega stöðu lands á Norðurlandi milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Uppkvaðningin fer fram klukkan 10:00 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Með úrskurðum sínum lýkur nefndin umfjöllun sinni um svæði númer sjö, en landinu öllu er skipt í ellefu svæði, eins og greinir nánar á skýringarmyndinni hér til hliðar. Óbyggðanefnd var skipuð árið 1998. Hlutverk hennar er að skera úr um hvaða svæði landsins eru í einkaeigu og hver teljast eign ríkisins. Samkvæmt núgildandi lögum skal stefnt að því að óbyggðanefnd ljúki starfi sínu fyrir árið 2014. Undanfarið hefur hins vegar dregið úr umfangi óbyggðarnefndar og starfsemi. Sif Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri óbyggðanefndar, segir það muni fara eftir fjárveitingum hvort nefndinni takist að ljúka starfi sínu fyrir sett tímamark. Eins og stendur hefur óbyggðanefnd eitt mál sem varðar sveitarfélagamörk til umfjöllunar. Þar fyrir utan eru ekki önnur mál á borðinu en þau sem úrskurðað verður um á mánudaginn komandi. Samkvæmt gildandi lögum er fjármálaráðherra er ekki heimilt að gera kröfur varðandi þau landsvæði sem eftir eru fyrr en í fyrsta lagi í janúar á næsta ári. Það fer því mjög eftir þeim kröfum ráðherra sem og fjárveitingum hvort nefndin mun hafa eitthvað að starfa á næsta ári.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira