Verkfall félagsráðgjafa hefur áhrif á fjárhagsaðstoð 10. september 2011 19:00
Félagsráðgjafar hjá borginni ætla í verkfall eftir tvær vikur ef ekki tekist að klára kjarasamninga fyrir þann tíma. Þeir telja sig búa við lakari kjör en þeir sem sinna sambærilegum störfum hjá öðrum sveitarfélögum. Verkfallið myndi hafa áhrif á greiðslur fjárhagsaðstoðar til einstaklinga. Félagsráðgjafar hjá Reykjavíkurborg samþykktu í gær að leggja niður störf 26. september ef ekki hafa tekist kjarasamningar fyrir þann tíma. Rúmlega hundrað félagsráðgjafar starfa hjá borginni. Flestir starfa hjá þjónustumiðstöðum, Barnavernd Reykjavíkur og á skrifstofu Velferðarsviðs. Verkfall myndi hafa nokkur áhrif. Bryndís Ósk Geirsdóttir, talsmaður félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg, segir verkfall þýða að sú starfsemi sem er á könnu félagsráðgjafanna lamist svolítið. Það sé helst fjárhagsaðstoð til einstaklinga Þannig myndi verkfallið hafa áhrif á greiðslur fjárhagsaðstoðar til einstaklinga og barnaverndarmálum yrði ekki sinnt í sama mæli og nú er. Verkfallið hefði einnig áhrif á húsnæðisúthlutun hjá Félagsbústöðum. Bryndís segir félagsráðgjafa í borginni búa við lakari kjör en þeir sem sinna sambærilegum störfum í öðrum sveitarfélögum. Til að mynda sé sjötíu þúsund króna munur á þeim og félagsráðgjöfum í Hafnarfirði. Hún segir kröfur þeirra fyrst og fremst vera þær að gengið verði á endurmati á starfsmati sem félagsráðgjafar hafa beðið eftir síðan í apríl. Ekki sé hægt að samþykkja nýja kjarasamninga fyrr en það liggur fyrir. Þá vilja þeir sjá töluverða hækkun á lágmarkslaunum en þau eru nú um þrjú hundruð þúsund. Krafan sé að lágmarkslaun hjá þrjátíu ára gömlum félagsráðgjafa verði 440 þúsund krónur.
Mest lesið Moskítóflugan mætt til Íslands Innlent „Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upplifa svona rosalegt bakslag“ Innlent Fjórði starfsmaðurinn hættir en reynslubolti kemur inn Innlent Tegundin sé líklega komin til að vera Innlent Neitar enn að hleypa nýrri þingkonu að Erlent Gaf í skyn gróft kynlíf, gekk í skrokk á konu og dæmdur í fimm ára fangelsi Innlent Hafna aftur tillögu Trumps Erlent Verkfalli flugumferðarstjóra aflýst Innlent Skikkar bændur í meirapróf Innlent Alvarlegt umferðarslys austan við Klaustur Innlent Fleiri fréttir Kristrún til Grænlands „Það er aldrei hægt að kaupa barnið manns til baka“ Verkfalli flugumferðarstjóra aflýst Aðalvatnslögn Ísafjarðarbæjar rofin Útilokar ekki afskipti ríkisstjórnarinnar af verkfallinu Reyndi að greiða með fölsuðum seðli „Eins og líf skipti engu máli“ Öflugasti skjálfti í Mýrdalsjökli frá árinu 2023 Þrumuræða um börn með fíknivanda: „Eigum við að láta fleiri deyja á leiðinni?“ Fjórði starfsmaðurinn hættir en reynslubolti kemur inn Fellur frá kröfu um meirapróf bænda Þarf ekki lengur tilvísun til sjúkraþjálfara næsta vor Tegundin sé líklega komin til að vera Ofbeldismál gegn kennurum komi upp á öllum skólastigum Bjartsýnn á lausn í vikunni þótt ekki hafi verið boðað til fundar Moskítóflugan og verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra Götulokanir vegna kvennaverkfalls Kröftug skjálftahrina í Mýrdalsjökli Skikkar bændur í meirapróf Moskítóflugan mætt til Íslands Alvarlegt umferðarslys austan við Klaustur Verulega skert þjónusta vegna kvennaverkfalls Gaf í skyn gróft kynlíf, gekk í skrokk á konu og dæmdur í fimm ára fangelsi „Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upplifa svona rosalegt bakslag“ Hafði komið sér fyrir í varðskipinu án leyfis Brennur fyrir borgarhönnun og sárnaði að vera kölluð hræsnari Verkfall flugumferðarstjóra hafið Samkomulag við Þjóðverja eigi að tryggja varnir og öryggi Íslendinga Rödd Íslendinga í hinsegin baráttu hafi aldrei verið mikilvægari 105 ára boccia meistari í vesturbæ Reykjavíkur Sjá meira