Ólafur sá sig knúinn til að svara ummælum Steingríms 13. september 2011 14:06
Ólafur Ragnar Grímsson segist hafa séð sig knúinn til þess að svara ummælum fjármálaráðherra í Icesave málinu sem hann segir hafa verið aðför að ákvörðun forsetans. Hann muni ekki sitja undir því að ráðamenn fari fram af fyrra bragði með þessum hætti. Utanríkisráðherra segist hafa orðið hryggur við að heyra ummæli forsetans. Þau má sjá hér í heild sinni. Ólafur Ragnar var í viðtali í þættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í gær þar sem hann fór meðal annars yfir ummæli sín um ríkisstjórnina og Icesave síðustu daga. Sagði hann að deila mætti um það hvort forsetinn ætti að taka þátt í slíkri umræðu en hann hafi séð sig knúinn þegar fjármálaráðherra tjáði sig í byrjun september. Rifjaði hann upp að þegar skilanefnd Landsbankans upplýsti um góðar endurheimtur í þrotabú bankans hefði Steingrímur komið með þá sögulegu túlkun að allt sem hann hefði sagt og gert í málinu hefði verið rétt. Hinsvegar hefði hann eytt alltof mikilli orku og tíma í málið, og hafði áhyggjur af því. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tjáði sig síðan um ummælin í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og sagðist hann hafa orðið hryggur við að heyra forsetann ráðast í stórskotaliðsárás á fjármálaráðherra eins og hann orðaði það. Hann hefði ekki getað heyrt betur en að þetta ætti rætur í einhver innanflokksátök í Alþýðubandalaginu fyrir þrjátíu árum. Það væri ekki hlutverk forsetans að standa í orðaskaki við stjórnmálamenn. Össur upplýsti ennfremur að hann hefði reynt að ná tali af forsetanum í gærkvöldi, og vonaðist til að hitta hann í dag.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira