Leiðrétting Drekaklúðurs komin á dagskrá Alþingis 1. september 2011 12:08
Þrjú frumvörp, sem eru forsenda olíuleitarútboðs á Drekasvæðinu, hafa verið sett á dagskrá Alþingis á morgun, en þingið kemur þá saman til stutts haustsþings. Orkustofnun neyddist í sumar til að fresta útboðinu, sem átti að hefjast 1. ágúst, þar sem frumvörpin dagaði uppi á lokadögum þingsins í júní. Málinu hefur verið lýst sem klúðri Alþingis en lagafrumvörpin höfðu áður verið afgreidd úr viðkomandi þingnefndum án ágreinings. Stjórnarandstöðuþingmaður sagði þetta hafa gerst vegna ömurlegrar verkstjórnar á störfum ríkisstjórnar og Alþingis. Nú er vonast til að unnt verði að hefja útboðið í október, með því að opna fyrir aðgang olíufélaga að rannsóknargögnum, og að tilboð verði opnuð í apríl 2012. Það er þó háð því að Alþingi nái að samþykkja lagabreytingarnar á haustþinginu nú í september en þær lúta einkum að því að gera skattalöggjöf álitlegri til olíuleitar. Niðurstaða fyrsta útboðsins vorið 2009 olli vonbrigðum en þá sóttu tvö olíufélög um leyfi en hættu svo bæði við. Vonir eru bundnar við að áhuginn sé nú orðinn meiri. Þannig sóttu átta olíufélög kynningarfund Orkustofnunar í Stafangri í júníbyrjun, þeirra á meðal Exxon Mobil, Conoco Philips, Statoil og Total.
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira