Húsaleigukerfið mismunar námsmönnum 1. september 2011 16:29
Námsmenn sem búa í námsmannaíbúðum eða heimavistum hafa rýmri rétt til húsaleigubóta en námsmenn sem leigja á almennum markaði. Húsaleigubætur eru að meginreglu miðaðar við ákveðna fjárhæð fyrir hverja íbúð. Hins vegar hafa námsmenn sem leigja saman herbergi eða tvíbýli á námsmannagörðum rétt á fullum húsaleigubótum, hver fyrir sig, að því gefnu að þeir hafi hver gert sinn leigusamninginn. Þessi ríkari réttur námsmanna sem búa á námsmannagörðum kemur fram í 5. mgr. 7. gr. laga um húsaleigubætur, sem kom inn í lögin árið 2001. Sem dæmi felur reglan í sér að tveir félagar sem leigja saman íbúð á almennum markaði eiga rétt á ákveðinni upphæð, t.d. 18.000 kr, sem þeir geta skipt á milli sín. Ef félagarnir hins vegar leigja sams konar íbúð á námsmannagörðum getur hvor þeirra sótt um sömu upphæð, 18.000 kr, í húsaleigubætur fyrir sig - eða samtals 36.000 kr. „Og hvar er sanngirnin í því," spyr Elvar Rúnarsson, nemi í Fjölbrautarskólanum í Ármúla, og bætir við, „Væri ekki nær að breyta lögunum og láta regluna gilda um alla námsmenn, hvort sem þeir komast að á námsmannagörðum eða ekki?" Uppá síðkastið hefur spunnist mikil umræða um framboð á leiguhúsnæði fyrir námsfólk. Sem stendur eru um 560 manns á biðlista hjá Félagsstofnun stúdenta, og samt er stofnunin nýbúin að úthluta íbúðum fyrir veturinn. Elvar segist vita til þess að fólk sem leigir saman herbergi á heimavist á Verkmenntaskólanum á Akureyri fái fullar húsaleigubætur fyrir hvern leigjanda sem getur framvísað leigusamningi. „Og þess vegna svíður það að við verðum að sætta okkur við að deila upphæðinni bara því við komumst ekki á námsmannagarða," segir Elvar. Því lítur út fyrir að ekki sitji allir námsmenn við sama borð í húsaleigubótakerfinu.
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Sjá meira